Heimsmarkmiðin sem leiðarljós sveitarfélaganna í ferðaþjónustu: „Tækifæri eða tískumál þessa áratugar"

Ferðaþjónusta er ein af burðarstoðum efnahagslífs í heiminum og á Íslandi skilar hún útflutningsverðmæti sem vegur meira en sjávarútvegur og stóriðja til samans. Eðli ferðaþjónustunnar hér á landi er að ósnortin náttúra er helsta aðdráttaraflið og því er mikil áskorun að halda í við sjálfbærni. Svei...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Guðrún Indriðadóttir 1979-, Herdís Ýr Hreinsdóttir 1984-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/35841
Description
Summary:Ferðaþjónusta er ein af burðarstoðum efnahagslífs í heiminum og á Íslandi skilar hún útflutningsverðmæti sem vegur meira en sjávarútvegur og stóriðja til samans. Eðli ferðaþjónustunnar hér á landi er að ósnortin náttúra er helsta aðdráttaraflið og því er mikil áskorun að halda í við sjálfbærni. Sveitarfélög gegna mikilvægu hlutverki í ferðaþjónustu og er greinin orðin öflugt byggðaþróunar tæki. Ferðaþjónustufyrirtæki starfa í ólíkum sveitarfélögum og áskoranir því mismunandi eftir stærð, fjarlægð, íbúum, hagsmunaaðilum og áherslum sveitarstjórna. Markmiðið var að kanna hvernig Heimsmarkmiðin geta orðið leiðarljós til að styðja við sjálfbærni ferðaþjónustu í sveitarfélögum. Rýnt var í stefnu þeirra og einnig hlutverk hins opinbera og hagsmunaaðila í ferðaþjónustu. Gerð var eigindleg rannsókn þar sem viðtöl voru tekin við fimm aðila sem starfa við sveitarfélög, hið opinbera og hagsmunaaðila innan ferðaþjónustunnar. Borin voru saman tvö svæði með því að ræða við fulltrúa tveggja landshlutasamtaka sveitarfélaga, annars vegar á Norðausturlandi og hins vegar á Suðurnesjum. Niðurstöður leiddu í ljós að mismunandi viðhorf og geta er á milli sveitarfélaganna til að leiða Heimsmarkmiðin í stefnu þeirra varðandi ferðaþjónustu. Viðhorf var almennt jákvætt í garð markmiðanna en þau eru ekki notuð á beinan hátt. Rannsóknin leiddi í ljós að innleiðing markmiðanna getur hjálpað sveitarfélögum að mæta þeim áskorunum sem fylgja sjálfbærni í ferðaþjónustu. Marktækur munur var á svæðunum og innleiðing markmiðanna komin vel á veg á Suðurnesjum á meðan Eyþing hefur ekki hafið þá vinnu. Sveitarfélög gegna lykilhlutverki í innleiðingu markmiðanna þar sem þau eru í nálægð við fyrirtæki og íbúa, en jafnframt þarf hið opinbera að koma með sterka og skýra sýn til framtíðar.Lykilorð: Ábyrg ferðaþjónusta, ferðaþjónusta, Heimsmarkmiðin, innleiðing Heimsmarkmiðanna, sjálfbær ferðamennska, sjálfbær þróun, stjórnsýsla, sveitarfélög. Tourism is one of the pillars of our world economy and in Iceland the tourism revenue is larger than the ...