Aldurshlutföll íslenskra skógarþrasta að hausti og vetri

Skógarþröstur (Turdus iliacus) er algengur spörfugl á Íslandi og að langmestu leyti farfugl. Örfá þúsund fugla kjósa þó að eyða vetrinum á Íslandi, flestir á höfuðborgarsvæðinu. Hægt er að greina unga skógarþresti (þ.e. fugla í fyrsta fullvaxta fjaðrabúningi) frá fullorðnum skógarþröstum á nokkrum ú...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Snæþór Aðalsteinsson 1996-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/35827
Description
Summary:Skógarþröstur (Turdus iliacus) er algengur spörfugl á Íslandi og að langmestu leyti farfugl. Örfá þúsund fugla kjósa þó að eyða vetrinum á Íslandi, flestir á höfuðborgarsvæðinu. Hægt er að greina unga skógarþresti (þ.e. fugla í fyrsta fullvaxta fjaðrabúningi) frá fullorðnum skógarþröstum á nokkrum útlitsatriðum og byggði rannsóknin á því. Skógarþrestir voru veiddir veturinn 2019-2020 í Reykjavík og aldurshlutföll þeirra borin saman við upplýsingar um aldurshlutföll veiddra skógarþrasta á Höfn í Hornafirði haustin 2016-2019. Það var gert til að athuga hvort munur væri á aldurshlutföllum farfugla og staðfugla sem gæti bent til aldursbundinnar tilhneigingar skógarþrasta til að hafa vetursetu á Íslandi. Ekki kom fram munur á fartíma skógarþrasta eftir aldri. Hlutfall ungfugla í Reykjavík að vetri (0,427) var marktækt lægra en á Höfn að hausti, hvort sem miðað var við allt gagnasafnið á Höfn (0,801) eða haustið 2019 (0,757). Hlutfall ungfugla fyrir hvert haust á Höfn var á bilinu 0,757-0,841 en munurinn var ekki marktækur á milli ára. Afar ólíklegt er að munurinn á aldurshlutföllum farfugla og staðfugla sé að öllu leyti tilkominn vegna hærri tilhneigingar fullorðinna skógarþrasta til að hafa hér vetursetu. Hlutfall ungfugla að hausti á Höfn var óeðlilega hátt miðað við hvað búast má við að hvert skógarþrastarpar komi upp mörgum ungum. Einnig má gera ráð fyrir töluvert lægri lífslíkum ungfugla en fullorðinna yfir veturinn auk þess sem varpafkoma var slök hjá skógarþröstum á höfuðborgarsvæðinu sumarið 2019 og getur hvort tveggja leitt til lægra hlutfalls ungfugla um veturinn. The Eurasian Redwing (Turdus iliacus) is a common passerine in Iceland and mostly migratory with few thousand birds overwintering annually in urban areas in SW-Iceland. This study is based on the possibility to distinguish between young redwings (i.e. birds in their first basic plumage) and adults by looking at certain feather characteristics in their flight and tail feathers. Redwings were trapped in the winter of 2019-2020 in Reykjavík ...