Breytingar á þyngdarstuðli skógarþrasta (Turdus iliacus) yfir árið

Rannsóknir hafa sýnt fram á að fuglar þyngi sig bæði fyrir far og í köldu loftslagi á veturna. Á flugi eyða fuglar mikilli orku svo áður en þeir leggja af stað safna þeir upp fituforða sem þeir geta nýtt til flugs á fari. Þeir fuglar sem dvelja við kalt loftslag eyða mikilli orku í að viðhalda líkam...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Jóhanna Sigurðardóttir 1994-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/35810
Description
Summary:Rannsóknir hafa sýnt fram á að fuglar þyngi sig bæði fyrir far og í köldu loftslagi á veturna. Á flugi eyða fuglar mikilli orku svo áður en þeir leggja af stað safna þeir upp fituforða sem þeir geta nýtt til flugs á fari. Þeir fuglar sem dvelja við kalt loftslag eyða mikilli orku í að viðhalda líkamshita og því er þeim einnig mikilvægt að safna upp forða. Skógarþrestir (Turdus iliacus) á Íslandi fara flestir í far á haustin en hluti fuglanna þreyir þorrann og dvelur á landinu yfir vetrarmánuðina. Leitað var svara við því hvort munur væri á þyngdarstuðli fugla að vetri og sumri, hvort fuglar að vetri væru þyngri eða jafnþungir fuglum á leið í far og hvort munur væri á hraða þyngdaraukningar milli aldurshópa. Staðfuglar úr hópi skógarþrasta voru veiddir í Fossvogskirkjugarði í Reykjavík að vetri. Í rannsókninni voru einnig notuð gögn frá Höfn í Hornafirði en þar eru skógarþrestir veiddir yfir allt árið með sérstöku átaki yfir fartíma. Fuglarnir voru mældir og vigtaðir og þyngdarstuðull útbúinn sem vísir fyrir uppsafnaðan forða þeirra (fita og vöðvar). Fuglar að vetri höfðu mun hærri þyngdarstuðul en fuglar að sumri. Að auki mældist þyngdarstuðullinn meðal staðfugla yfir hávetur hærri en þyngdarstuðull meðal farfugla þegar hann varð hæstur. Meðalhitastig og lengd nætur voru borin saman við meðalþyngdarstuðul á viku. Nokkuð góð fylgni var með lengd nætur og meðalþyngdarstuðuls en engin fylgni fannst milli meðalhitastigs og meðalþyngdarstuðuls. Á Höfn þyngdust fullorðnir fuglar marktækt hraðar en ungfuglar fyrir far að hausti. Studies have shown that before migration and during cold winter climates, birds put on significant amount of weight. Energy cost for birds during flight is very high so before migration, they accumulate large amounts of fat for use during migration. Birds that remain in cold climates during non-breeding season use significant amount of energy to maintain constant body temperature, therefor, resident birds also gain weight. Most Icelandic redwings migrate but some are resident. In this ...