Kvenlögregla og siðferðismálin: Umræður 1900-1940.

Í ritgerðinni er fjallað um hugmyndir um stofnun embættis kvenlögreglu í Reykjavík á árunum milli stríða, umræður sem sköpuðust í kringum það og siðferðismálin sem voru því nátengd. Fyrst var rætt opinberlega um málið á opnum fundi Bandalags kvenna í Reykjavík þann 24.september 1921 og varð það eitt...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Atli Björn Jóhannesson 1996-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/35493
Description
Summary:Í ritgerðinni er fjallað um hugmyndir um stofnun embættis kvenlögreglu í Reykjavík á árunum milli stríða, umræður sem sköpuðust í kringum það og siðferðismálin sem voru því nátengd. Fyrst var rætt opinberlega um málið á opnum fundi Bandalags kvenna í Reykjavík þann 24.september 1921 og varð það eitt af baráttumálum Bandalagsins að koma slíku embætti á laggirnar í Reykjavík. Í ritgerðinni er varpað ljósi á hvaða rökum var beitt fyrir stofnun þessa embættis og af hverju konur innan kvennahreyfingarinnar töldu nauðsyn á því. Einnig er umræðan um kvenlögreglu sett í samhengi við hugmyndir um samfélagslegt hlutverk kvenna og kvenímyndir og hvernig hugmyndir um starfssvið kvenlögreglunnar endurspegla það. Jafnframt eru hugmyndir kvenna hér á landi um starfssvið kvenlögreglu settar í samhengi við störf kvenlögreglu í öðrum löndum.