Kvenlögregla og siðferðismálin: Umræður 1900-1940.
Í ritgerðinni er fjallað um hugmyndir um stofnun embættis kvenlögreglu í Reykjavík á árunum milli stríða, umræður sem sköpuðust í kringum það og siðferðismálin sem voru því nátengd. Fyrst var rætt opinberlega um málið á opnum fundi Bandalags kvenna í Reykjavík þann 24.september 1921 og varð það eitt...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2020
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/35493 |
Summary: | Í ritgerðinni er fjallað um hugmyndir um stofnun embættis kvenlögreglu í Reykjavík á árunum milli stríða, umræður sem sköpuðust í kringum það og siðferðismálin sem voru því nátengd. Fyrst var rætt opinberlega um málið á opnum fundi Bandalags kvenna í Reykjavík þann 24.september 1921 og varð það eitt af baráttumálum Bandalagsins að koma slíku embætti á laggirnar í Reykjavík. Í ritgerðinni er varpað ljósi á hvaða rökum var beitt fyrir stofnun þessa embættis og af hverju konur innan kvennahreyfingarinnar töldu nauðsyn á því. Einnig er umræðan um kvenlögreglu sett í samhengi við hugmyndir um samfélagslegt hlutverk kvenna og kvenímyndir og hvernig hugmyndir um starfssvið kvenlögreglunnar endurspegla það. Jafnframt eru hugmyndir kvenna hér á landi um starfssvið kvenlögreglu settar í samhengi við störf kvenlögreglu í öðrum löndum. |
---|