Vörumörkun og aðdráttarafl Íslands. Framlag Íslandsstofu
Meginmarkmið þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á að hvaða leyti Íslandsstofa vörumarkar Ísland á alþjóðavettvangi. Fræðilegur hluti ritgerðarinnar vefur saman hugtökin mjúkt vald, almannadiplómatíu og vörumörkun lands og þjóðar. Efnislegi hluti ritgerðarinnar fjallar um þá þætti sem höfðu áhrif á...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2020
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/35475 |
Summary: | Meginmarkmið þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á að hvaða leyti Íslandsstofa vörumarkar Ísland á alþjóðavettvangi. Fræðilegur hluti ritgerðarinnar vefur saman hugtökin mjúkt vald, almannadiplómatíu og vörumörkun lands og þjóðar. Efnislegi hluti ritgerðarinnar fjallar um þá þætti sem höfðu áhrif á ímynd Íslands á seinustu árum og hvernig Íslandsstofa notfærði sér þá auknu umfjöllun til að styrkja ímynd lands og þjóðar. Þá er farið yfir starfsemi og áherslur Íslandsstofu og hverjir markhópar Íslands á sviði ferðamála eru. Niðurstaða þessarar ritgerðar greinir frá því hvaða leiðir Íslandsstofa nýtir sér til vörumörkunar Íslands og hvaða áhrif það hefur haft á aðdráttarafl Íslands. |
---|