Mikilvægi hvatningar á vinnustað

Hvatakerfi af ýmsum toga finnast nú á vinnustöðum víðsvegar um heiminn. Ritgerð þessi fjallar um mikilvægi hvatningar á vinnustað og áhrif hvata á vinnuframlag starfsmanna. Vel hvattur starfsmaður er líklegri til þess að vera afkastamikill og ánægður í starfi en með ánægðara starfsfólki og bættu vin...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Oktavía Signý Hilmisdóttir 1996-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/35438
Description
Summary:Hvatakerfi af ýmsum toga finnast nú á vinnustöðum víðsvegar um heiminn. Ritgerð þessi fjallar um mikilvægi hvatningar á vinnustað og áhrif hvata á vinnuframlag starfsmanna. Vel hvattur starfsmaður er líklegri til þess að vera afkastamikill og ánægður í starfi en með ánægðara starfsfólki og bættu vinnuframlagi þeirra er líklegra að sett markmið skipulagsheilda náist. Að framansögðu þarf að athuga kosti og galla hvers hvatakerfis því slíkt kerfi kann ekki endilega að skila þeirri frammistöðu sem unnið var að til að byrja með. Þá hafa ýmsar hvatakenningar verið settar fram en ritgerðin fjallar um þarfapíramída Maslow, tveggja þátta kenningu Herzberg, kenningu McClelland um þörf fyrir árangur, tengsl og völd, kenningu McGregor um X og Y, sanngirniskenninguna og að lokum væntingakenningu Vroom. Lagt var upp með rannsóknarspurningu: Skipta hvatar máli og, ef svo er, í hvaða formi? Markmið ritgerðar er að leita svara við þessari spurningu. Niðurstöður rannsóknar sem gerð var í tengslum við ritgerðina leiddu í ljós jákvæð viðhorf þátttakenda gagnvart hvötum og með niðurstöðum er hægt að fullyrða að hvatar skipti máli. Form hvatanna var því skoðað og gerð athugun á því hvaða hvatningarþættir höfðu mest áhrif á þátttakendur rannsóknar. Niðurstöður gáfu til kynna að góð samskipti, bæði hjá samstarfsmönnum og yfirmönnum, hefðu mest áhrif á hvatningu starfsmanna. Þá var það að fá góð laun mikilvægasti hvatningarþátturinn hjá karlmönnum en hinn sami hvatningarþáttur þótti konum vera áttundi mikilvægasti hvatningarþátturinn af 31 gefnum. Niðurstöður rannsóknarinnar geta nýst stjórnendum skipulagsheilda sem stefna að notkun hvatakerfa til þess að ná fram bættu vinnuframlagi starfsfólks síns.