Tengsl fæðingarþunglyndis við tíðni brjóstagjafar fullburða barna á Íslandi

Lengi hafa kostir brjóstagjafar verið þekktir, bæði fyrir móður og barn. Skortur er á nýlegum rannsóknum á tíðni brjóstagjafar á Íslandi en ýmsar samfélagslegar breytingar hafa orðið undanfarin ár, sem kunna að hafa áhrif á tíðni brjóstagjafar. Einnig er skortur á nýlegum rannsóknum á tíðni fæðingar...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Bryndís Sunna Jóhannesdóttir 1996-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/35212
Description
Summary:Lengi hafa kostir brjóstagjafar verið þekktir, bæði fyrir móður og barn. Skortur er á nýlegum rannsóknum á tíðni brjóstagjafar á Íslandi en ýmsar samfélagslegar breytingar hafa orðið undanfarin ár, sem kunna að hafa áhrif á tíðni brjóstagjafar. Einnig er skortur á nýlegum rannsóknum á tíðni fæðingarþunglyndis og tengslum þess við brjóstagjöf á Íslandi. Tilgangur verkefnisins er að kanna tíðni brjóstagjafar hjá fullburða, heilbrigðum börnum á Íslandi og að kanna tíðni fæðingarþunglyndis hjá mæðrum fullburða, heilbrigðra barna á Íslandi. Einnig að athuga hvort munur sé á tíðni brjóstagjafar á milli mæðra með fæðingarþunglyndi og mæðra sem ekki eru með fæðingarþunglyndi. Verkefnið er unnið úr gögnum stærri rannsóknar þar sem gögnum var safnað frá mæðrum (n=277) sem áttu barn á Landspítala háskólasjúkrahúsi frá mars 2015 til loka maí 2017. Tíðni brjóstagjafar fullburða, heilbrigðra barna á Íslandi var 98% fyrstu vikuna heima. Við 1 mánaðar aldur barns voru 96% á brjósti, 84% við 4 mánaða aldur, 61% við 8 mánaða aldur og 22% við 12 mánaða aldur. Tíðni eingöngu brjóstagjafar var 86% fyrstu vikuna heima, 74% við 1 mánaðar aldur og 43% við 4 mánaða aldur barns. Tíðni fæðingarþunglyndis hjá mæðrum fullburða, heilbrigðra barna á Íslandi var 9% einum mánuði eftir fæðingu og 8% fjórum mánuðum eftir fæðingu. Marktækur munur reyndist vera á tíðni brjóstagjafar barna hjá mæðrum með fæðingarþunglyndi og mæðrum sem ekki voru með fæðingarþunglyndi við 1 mánuð (p<0,01) en ekki reyndist vera marktækur munur 4 mánuðum eftir fæðingu. Flestar mæður á Íslandi hefja brjóstagjöf og tíðni brjóstagjafar er almennt há í samanburði við önnur lönd, þó er tíðni eingöngu brjóstagjafar heldur lág. Fæðingarþunglyndi virðist hafa áhrif á upphaf brjóstagjafar en ekki lengd. Frekari rannsókna er þörf á tengslum fæðingarþunglyndis við brjóstagjöf á Íslandi og hvernig hjúkrunarfræðingar geti stutt við mæður með fæðingarþunglyndi til þess að stuðla að brjóstagjöf. Lykilorð: Fæðingarþunglyndi, eingöngu brjóstagjöf, brjóstagjöf, fullburða barn