Summary: | Á síðustu árum hefur fjöldi hjúkrunarfræðinga af erlendum uppruna flust búferlum hingað til lands og hafið störf í íslenskri heilbrigðisþjónustu. Þessir einstaklingar hafa brugðist við ríkjandi skorti á heilbrigðisstarfsfólki sem hefur verið vandamál á Íslandi til lengri tíma og því mikilvægt að halda vel utan um þennan hóp. Þátttakendur rannsóknarinnar voru hjúkrunarfræðingar af erlendum uppruna og var meginmarkmiðið að fá innsýn í upplifun þeirra á að starfa á hjúkrunarheimilum á Íslandi ásamt upplifun þeirra á hvötum og hindrunum til að vaxa í starfi innan þeirra. Framkvæmd var eigindleg viðtalsrannsókn þar sem tekin voru viðtöl við tíu hjúkrunarfræðinga af erlendum uppruna. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að lítil tungumálakunnátta og að hafa orðið fyrir fordómum hafi haft neikvæð áhrif á upplifun þeirra. Stuðningur samstarfsfólks skipti lykilmáli ásamt góðum samskiptum innan hjúkrunarheimilanna fyrir jákvæða upplifun. Að vera treyst fyrir ábyrgðarhlutverkum og fá tækifæri til að vera sjálfstæðir hvatti þá til að vaxa í starfi ásamt því að geta reglulega sótt starfstengd námskeið. Út frá niðurstöðunum má álykta að margt er hægt að gera betur til að bæta stöðu þessa hóps og er það von rannsakanda að þessi rannsókn nýtist stjórnendum hjúkrunarheimila sem eru með starfandi hjúkrunarfræðinga af erlendum uppruna til að vera meðvitaðri um stöðu þeirra. Nýta mætti rannsóknina til að hvetja stjórnendur enn fremur til að notast við þá þætti sem komu fram í niðurstöðunum til að gera betur svo þessi mikilvægi hópur í íslenskri heilbrigðisþjónustu hafi aukna möguleika til að vaxa í starfi. Lykilorð: Innflytjendur, hjúkrunarfræðingar, tungumál, fordómar, samskipti, traust, ábyrgð, námskeið. In recent years, several nurses of foreign origin have migrated to Iceland to work within the Icelandic healthcare system. These individuals have responded to a lack of health care professionals which has been an ongoing problem in Iceland. It is therefore important to provide adequate care for these people. The ...
|