Summary: | Blöndun trjátegunda í nytjaskógrækt getur aukið ræktunaröryggi þegar kemur að loftslagsbreytingum og mögulega aukið efnahagslegt öryggi í timburframleiðslu. Áhrif tegundablöndu á vöxt trjáa í skógi, framleiðni og kolefnisbindingu hafa verið rannsökuð í mun meira mæli á öðrum Norðurlöndum en á Íslandi. Það er þó mikilvægt að skoða áhrif tegundablöndu við íslenskar aðstæður vegna þess að hér eru bæði jarðvegsskilyrði og veðurfar með öðru móti en gengur og gerist annarsstaðar og á Íslandi eru ræktaðar tegundablöndur sem sjaldnast eru ræktaðar í öðrum löndum. Tilraun sú sem mæld var og fjallað er um í þessari ritgerð (LT-verkefnið) er fyrsta tilraun hér á landi með trjátegundablöndu í stórum samfelldum reitum (1/2 ha) í blokkum sem endurteknar voru við sömu jarðvegsskilyrði. Í Gunnarsholti á Rangárvöllum voru borin saman birki (Betula pubescens Ehrh.), sitkagreni (Picea sitchensis (Bong.) Carr.), stafafura (Pinus contorta Douglas) og alaskaösp (Populus trichocarpa Torr. & A. Gray ex. Hook.). Fyrir utan lerki (Larix sp.) eru þetta fjórar mikilvægustu trjátegundirnar í skógrækt á Íslandi. Tegundirnar voru ýmist ræktaðar einar sér, eða í 50 % eða 25 % blöndu með sitkagreni. Fyrsta markmið rannsóknarinnar var að endurmeta eldri tilraun 15 árum eftir gróðursetningu. Í henni voru prófaðar mismunandi aðferðir við gróðursetningu. Annað markmið var að taka út lifun í allri LT-tilrauninni í Gunnarsholti, það þriðja að meta vöxt, framleiðni og bolgæði trjátegundanna og það fjórða að kanna hvort einhver munur væri á lifun, vexti, framleiðni og vaxtarlagi trjáa í tegundablönduðum reitum samanborið við einnar tegundar reiti. Fimmta og síðasta markmiðið var að bera saman allar meðferðir á tveimur mismunandi gróðurlendum, graslendi með þykkum jarðvegi sem var fyrrum tún, og fyrrum örfoka svæði með rýrum og grunnum jarðvegi þar sem sáð var með lúpínu (Lupinus nootkatensis Donn ex. Sims) fyrir 24 árum. Engin marktæk langtímaáhrif fundust í gróðursetningartilrauninni, nema hvað að jarðvinnsla með gróðursetningarplóg hafði marktæk ...
|