Meðhöndla fjölmiðlar flugfélögin á sama hátt?

Á síðasta áratug hefur mikilvægi ferðaþjónustunnar á Íslandi margfaldast, og með því reiða fleiri atvinnurekendur sig á innstreymi ferðamanna til landsins. Um áratugaskeið var einungis eitt ríkjandi flugfélag á millilandamarkaði, Icelandair. Í gegnum tíðina hafa mörg flugfélög verið stofnuð á Ísland...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Torfi Geir Símonarson 1989-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/35026
Description
Summary:Á síðasta áratug hefur mikilvægi ferðaþjónustunnar á Íslandi margfaldast, og með því reiða fleiri atvinnurekendur sig á innstreymi ferðamanna til landsins. Um áratugaskeið var einungis eitt ríkjandi flugfélag á millilandamarkaði, Icelandair. Í gegnum tíðina hafa mörg flugfélög verið stofnuð á Íslandi til höfuðs Icelandair en fáir haft erindi sem erfiði. Árið 2012 hóf sig til flugs nýtt flugfélag í eigu frumkvöðulsins Skúla Mogensen, Wow Air, en Skúli kom efnaður heim eftir vel heppnaðan fjárfestingaferil í Kanada og ákvað að setja sitt mark á flugbransann með því að nýta sér nokkuð nýtilkomnar vinsældir Íslands sem ferðamannastaðar. Skúli stofnaði félagið 2011 og hóf starfsemi 2012. Með tilkomu WOW Air og hröðum vexti félagsins árin á eftir varð í fyrsta sinn um langa hríð til stór og öflugur keppinautur fyrir Icelandair í samkeppninni um flug til og frá landinu. Eins og oft vill verða þegar miklar breytingar verða á markaði er umfjöllun um persónur og leikendur mikil og efnistökin fara oft vítt og breitt. Í rannsókn þessari er umfjöllun um félögin skoðuð með hliðsjón af uppgangi WOW air og endalokum þess og efnistök umfjöllunar um félögin borin saman með það að markmiði að greina hvort og þá hvernig fjölmiðlar fjalla um félögin á ólíkan hátt. Hvort að félögin njóti þar sannmælis og hvort að umfjöllun fjölmiðlanna geti talist sanngjörn gagnvart báðum félögum. Einnig er rætt við viðskiptaritstjóra stórs fjölmiðils sem hefur skrifað mikið um flugfélögin og leitast við að fá svör við því hvað einkennir umfjöllun og upplýsingaöflun fjölmiðla þegar kemur að flugfélögunum. In the last decade the importance and size of the tourism industry in Iceland has grown tremendously causing more and more companies to rely on the influx of foreign tourists into the market. For many decades Iceland only had one international carrier, Icelandair. Through the years many airlines have been founded in Iceland to compete with Icelandair but few have survived long. In 2012 a new airline took to the skies, Skúli Mogensen' Wow Air, but ...