Sköpun og útikennsla í skólastarfi

Verkefnið er lokað til 01.01.2028. Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed. gráðu í kennarafræðum frá Háskólanum á Akureyri. Ritgerðin er skrifuð með því markmiði að fjalla um mikilvægi sköpunar og útikennslu í námi barna. Skoðað er hvaða áhrif bæði sköpun og útikennsla hafi á nemendur, hvernig er be...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Tinna Líf Baldvinsdóttir 1989-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/34985
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 01.01.2028. Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed. gráðu í kennarafræðum frá Háskólanum á Akureyri. Ritgerðin er skrifuð með því markmiði að fjalla um mikilvægi sköpunar og útikennslu í námi barna. Skoðað er hvaða áhrif bæði sköpun og útikennsla hafi á nemendur, hvernig er best að meta þessa þætti og hvað er það helst sem hindra kennara í að nota sköpun og útikennslu í kennslu sinni. Einnig er skoðað hvað er til um samþættingu þessa þátta. Við vinnslu ritgerðarinnar kom í ljós að rannsóknir á samþættingu útikennslu miðað við aðrar námsgreinar skorti. Hér fyrir neðan er m.a. litið í grein eftir Hrafnhildi Eiðsdóttur og Jóhönnu Einarsdóttur sem byggir á rannsókn þeirra, þar sem þær taka viðtal við fjóra kennara úr Waldorfskóla sem hafa reynslu á sköpun og útikennslu í skólastarfi. Markmið rannsóknarinnar var að skoða sannfæringu kennara á gildi sköpunarmáttar í skólastarfi. Niðurstöður sýndu að kennararnir voru sammála um að með því að nýta sköpunarmátt í skólastarfi næðu þeir til nemenda á árangursríkan hátt og stuðluðu þannig að betra námi. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar er að nemendum finnst almennt gaman að vinna verkefni á skapandi hátt og vera úti þar sem þau upplifa, snerta og læra um viðfangsefni sem eru sýnileg ekki eingöngu í gegnum bækur. Hér kemur því berlega í ljós að með því að nota sköpun og útikennslu í námi barna er verið að gefa nemendum tækifæri til að finna styrkleika sína, efla sjálfstraust þeirra, þroska og sjálfstæði í skólastarfi. This thesis is a final project for B.Ed. degree in pedagogy, at the University of Akureyri. It is written with the goal of demonstrating the importance of creativity in children's education and how outdoor teaching can bring diversity into every day teaching. It shows what impact, both creativity and outdoor teaching, has on students, how it is best to assess and what it is that prevents teachers from using that kind of teaching. While working on this essay and gathering sources, it was revealed that out of these aspects of teaching, ...