Grenndarkennsla í Heiðarhverfi : hvernig er hægt að nýta samræður sem hluta af grenndarkennslu í leikskólastarfi?

Verkefnið er lokað til 11.08.2022. Ritgerðin fjallar um það hvernig hægt er að nýta samræður sem hluta af grenndarkennslu í leikskólastarfi. Ritgerðinni fylgir verkefnasafn sem inniheldur 14 grenndarverkefni með áherslu á samræður. Ritgerðin er greinargerð þar sem höfundur leitast við að skoða og þr...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Eysteinn Sindri Elvarsson 1985-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/34980
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 11.08.2022. Ritgerðin fjallar um það hvernig hægt er að nýta samræður sem hluta af grenndarkennslu í leikskólastarfi. Ritgerðinni fylgir verkefnasafn sem inniheldur 14 grenndarverkefni með áherslu á samræður. Ritgerðin er greinargerð þar sem höfundur leitast við að skoða og þróa eigið starf og kennsluumhverfi, auk þess að dýpka skilning á nærumhverfinu og kennsluaðferðum. Greinargerðin er tvískipt. Fyrri hluti hennar fjallar um grenndaraðferð og Heiðarhverfið í Reykjanesbæ sem er viðfangsefnið í verkefnasafninu. Leitast var við að skoða hvaða möguleika hverfið býður upp á til að nýta grenndaraðferð í leikskólastarfi, þar sem náttúra, menning og saga nærumhverfisins er í brennidepli. Grenndarkennsla sem kennsluaðferð veitir börnum tækifæri til að kanna og fræðast um nærumhverfi sitt. Einnig stuðlar grenndarkennsla að aukinni söguvitund, grenndarvitund og umhverfisvitund barna, en þessir þættir eru á meðal grunnforsenda sterkrar sjálfsvitundar einstaklinga. Í seinni hluta greinargerðarinnar er fjallað um samræður sem kennsluaðferð, þar sem leitast var við að varpa ljósi á árangursríkar samræður. Í verkefnasafninu er að finna verkefni með áherslu á grenndaraðferð, þar sem samræður eru notaðar sem kennsluaðferð. Verkefnin eiga það sameiginlegt að fara þarf í vettvangsferðir á 14 mismunandi áfangastaði í Heiðarhverfi og næsta nágrenni. Staðirnir sem koma við sögu í verkefnasafninu hafa allir náttúru-, menningar- og sögulegt gildi innan svæðisins. The main purpose of the thesis is to explore how dialogue can be as a teaching method in environmental studies in preschools. Alongside the thesis is a handbook with projects using dialogue as a teaching method in environmental studies. The thesis consists of two parts. In the first part environmental studies are discussed and how the method can be used with children of preschool age in Heiðarhverfi and the immediate surroundings. Heiðarhverfi area is the main topic of this thesis. Heiðarhverfi is located in Reykjanesbær, Iceland where the nature, ...