„Loftslagsáhrif eru stóri fíllinn í stofunni“: áhrif loftslagsmála á flug á Íslandi

Loftslagsbreytingar af mannavöldum eru fjölþætt og flókið vandamál sem hefur áhrif á öll ríki, samfélög og einstaklinga í heiminum. Umfang og alvarleiki áhrifanna kemur sífellt betur í ljós og vegna margbreytileika vandans er erfitt að vita hvað sé best að gera til að sporna við þeim áhrifum sem ath...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Dóra Björg Árnadóttir 1994-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2020
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/34941
Description
Summary:Loftslagsbreytingar af mannavöldum eru fjölþætt og flókið vandamál sem hefur áhrif á öll ríki, samfélög og einstaklinga í heiminum. Umfang og alvarleiki áhrifanna kemur sífellt betur í ljós og vegna margbreytileika vandans er erfitt að vita hvað sé best að gera til að sporna við þeim áhrifum sem athæfi mannsins veldur á umhverfið. Flug hefur aukist mikið undanfarna áratugi og spár benda til áframhaldandi vaxtar en þar sem að flug hefur neikvæð umhverfisáhrif er mikill þrýstingur á flugiðnaðinn að leggja sitt af mörkum til að draga úr þeim. Markmið þessarar rannsóknar er að rannsaka áhrif loftslagsbreytinga á fyrirtæki og stofnanir tengd flugi á Íslandi rannsökuð og hvernig þau bregðast við í stefnumótun og starfsemi sinni. Framkvæmd var eigindleg rannsókn og tekin fimm viðtöl við starfsmenn á sviði umhverfismála og samfélagslegrar ábyrgðar hjá fyrirtækjum og stofnunum tengdum flug- og umhverfismálum á Íslandi. Niðurstöðurnar benda til þess að loftslagsbreytingar hafi áhrif á afstöðu flugfyrirtækja og tengdra stofnana til umhverfisáhrifa starfsemi sinnar auk ábyrgðar sinnar gagnvart samfélagi og umhverfi. Vistvænni orkugjafar eru enn ekki raunhæfur kostur fyrir flugvélar þar sem að huga þarf að öryggi, kostnaði og umhverfisáhrifum en flugfyrirtæki hafa gert ýmsar breytingar á starfsemi sinni til að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum starfseminnar eins og að flokka sorp, kolefnisjafna og stuðla að orkuskiptum þar sem hægt er. Einnig leggja flugfyrirtæki meiri áherslu á samfélagslega ábyrgð og styðjast m.a. við umhverfisstefnumótun og heimsmarkmið Sameinuðu Þjóðanna til að stuðla að ábyrgri neyslu og samvinnu starfsfólks, hagaðila og samfélagsins um umhverfismál. Anthropogenic climate change is a multifaceted and complex crisis affecting all states, communities and individuals of the world. The magnitude and severity of the effects are becoming increasingly apparent and due to the complexity of the situation it is difficult to know how to counteract the effects of human activity on the environment. Flights have ...