Saga tómstunda og félagsmála barna og unglinga í Ólafsfirði

Í hverju samfélagi er félagsstarf fyrir börn og unglinga mikilvægur þáttur í lífsgæðum íbúa. Fjölskyldur láta slíkt hafa áhrif á val sitt um búsetu til framtíðar. Flestir geta verið sammála því. Í litlum samfélögum eins og Ólafsfirði má segja að slíkt starf sé enn mikilvægara en í stærri samfélögum...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Gísli Rúnar Gylfason
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/3465
Description
Summary:Í hverju samfélagi er félagsstarf fyrir börn og unglinga mikilvægur þáttur í lífsgæðum íbúa. Fjölskyldur láta slíkt hafa áhrif á val sitt um búsetu til framtíðar. Flestir geta verið sammála því. Í litlum samfélögum eins og Ólafsfirði má segja að slíkt starf sé enn mikilvægara en í stærri samfélögum þar sem framboð afþreyingar er fjölbreyttara. Íslenskt samfélag hefur tekið miklum breytingum á undanförnum áratugum og félagsstarfið hefur ekki farið varhluta af því. Það er því áhugavert að skoða hvernig félagsstarf hefur þróast í Ólafsfirði á síðustu áratugum og hvaða breytingar hafa orðið. Ólafsfjörður er einnig áhugavert rannsóknarefni, þar sem mögulegt er að skoða hvort munur er á þeim tímabilum þar sem æskulýðsfulltrúar voru starfandi í bænum eða þegar enginn slíkur var starfandi.