Summary: | Ritgerð þessi er lokaverkefni til MIS gráðu í upplýsingafræði við Háskóla Íslands. Hún fjallar um notkun skólasafns við kennslu í fyrsta til fjórða bekk grunnskóla. Markmið rannsóknarinnar var að öðlast skilning á reynslu umsjónarkennara, sérkennara og skólasafnskennara af starfsemi skólasafna. Ásamt því að athuga hvernig skólasöfnin geta skipulagt og þróað starfsemi sína með læsi og lestraránægju að leiðarljósi. Tilgangur með rannsókninni var að varpa ljósi á hvernig skólasafnið getur stuðlað að aukinni lestrargetu og lestraránægju nemenda í fyrsta til fjórða bekk grunnskóla. Við rannsóknina var notast við eigindlega rannsóknaraðferð sem byggir á sex einstaklingsviðtölum sem tekin voru á tímabilinu september 2018 til júní 2019. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að reynsla kennara af skólasafninu sé almennt jákvæð. Þeir nota skólasafnið til að styðja við kennsluna og lestrarnám barnanna. Jafnframt líta þeir á skólasafnið sem mikilvægan stuðning við kennsluna og nýta það til að nálgast bækur til upplestrar, lestrarþjálfunar, þemavinnu, ánægjulesturs og náms. Niðurstöður gefa einnig til kynna að upplýsingafræðingar á skólasöfnum geta stuðlað að læsi og lestraránægju með störfum sínum. Leggja þarf áherslu á að skólasöfnin séu vel búin, bjóði lestrarhvetjandi þjónustu og veiti tíma í lesendaráðgjöf. Einnig kom bersýnilega í ljós að allt skólasamfélagið gegnir mikilvægu hlutverki við eflingu læsis og lestraránægju ásamt uppbyggingu lestrarmenningar. Koma þarf á auknu samstarfi á milli kennara og skólasafnskennara til að nýta skólasafnið á sem árangursríkastan hátt. Ásamt þessu þarf að kynna vel hlutverk skólasafnsins og þjónustuna sem það býður uppá fyrir nemendum, kennurum og foreldrum. This thesis is written for a MIS degree in Information Science at the University of Iceland. It discusses the use of a school library with teaching in the first to fourth grades of elementary school. The aim of the study was to gain an understanding of the experience of supervising teachers, special education teachers and ...
|