Íþróttagarpar framtíðarinnar : áhrif íhlutunar í matarumhverfi íþróttafélags á fæðuval og viðhorf foreldra og 10-18 ára iðkenda

Þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi á Íslandi hefur aukist á seinni árum. Börn sem stunda íþróttir þurfa eins og aðrir fjölbreyttan og næringarríkan mat í nægu magni. Þættir sem hafa áhrif á fæðuval barna eru víða í íþróttaumhverfi. Markmið þessa verkefnis var að rannsaka fæðuvenjur barna á aldrinum...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Katrín Þóra Sigurbjörnsdóttir 1993-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/34574
Description
Summary:Þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi á Íslandi hefur aukist á seinni árum. Börn sem stunda íþróttir þurfa eins og aðrir fjölbreyttan og næringarríkan mat í nægu magni. Þættir sem hafa áhrif á fæðuval barna eru víða í íþróttaumhverfi. Markmið þessa verkefnis var að rannsaka fæðuvenjur barna á aldrinum 10-18 ára í kringum íþróttaæfingar og matarumhverfi íþróttamiðstöðva og matarumhverfi Ungmennafélagsins Aftureldingar (UMFA) ásamt því að skoða hvort íhlutun í matarumhverfinu geti haft áhrif á fæðuvenjur iðkenda og upplifun þeirra og foreldra af matarumhverfinu. Úttekt var gerð á úrvali veitingasölu íþróttamiðstöðvanna að Varmá og í Lágafelli sem er heimavöllur UMFA og á auglýsingum fyrir mat og drykk. Rýnihópar þjálfara og foreldra ræddu áhrifaþætti mataræðis iðkenda og hugsanlegar breytingar á matarumhverfi. Bæði fyrir og eftir íhlutun var spurningalisti lagður fyrir börn (n=66, haust 2018 og n=56, vor 2019) og foreldra (n=131, vor 2018 og n=125, vor 2019) sem laut að fæðuvali í kringum æfingar, fæðuframboði og auglýsingum innan íþróttamiðstöðvar. Niðurstöður sýndu ekki marktæka breytingu á fæðuvali þátttakenda eftir íhlutun. Þátttakendur borðuðu hollt eða frekar hollt í kringum æfingar og tóku helst nesti að heiman. Þá álitu þátttakendur úrval veitingasölu og ástand aðstöðu lélegt eða frekar lélegt, bæði fyrir og eftir íhlutun. Flestir þeirra vildu sjá enn frekari breytingar á matarumhverfi. Áframhald verður á næringarfræðslu fyrir iðkendur og foreldra þar sem framtakið mæltist vel fyrir. Þörf er á umfangsmeiri aðgerðum í nafni heilsueflingar svo breytingar á matarumhverfi geti borið marktækan árangur. Participation in organized sports has greatly increased in Iceland. Children who practice sports require dietary variety and nutrient rich foods. There are many determinants of children‘s food choice in sport settings. The aim of the study was to research food choices of youth athletes aged 10-18 around exercise and the food environment of sports clubs related to Ungmennafélagið Afturelding while also seeing if ...