Opinber stefnumótun um styrkingu foreldra og parsambands á fyrstu æviárum barna

Í þessari ritgerð er fjallað um samspilið milli opinbera kerfisins og fjölskyldna á Íslandi með tilliti til vellíðanar barna. Litið er til þess hvaða áhrif formgerðarbreytingar í fjölskyldum geta haft á foreldra og parsamband þeirra, sem og hverjar afleiðingar þessara breytinga geta verið, annars ve...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kristín Tómasdóttir 1982-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/34416
Description
Summary:Í þessari ritgerð er fjallað um samspilið milli opinbera kerfisins og fjölskyldna á Íslandi með tilliti til vellíðanar barna. Litið er til þess hvaða áhrif formgerðarbreytingar í fjölskyldum geta haft á foreldra og parsamband þeirra, sem og hverjar afleiðingar þessara breytinga geta verið, annars vegar fyrir börnin en hins vegar fyrir hið opinbera. Rannsóknarspurningin, sem hér er svarað, er: „Hvernig getur hið opinbera kerfi stutt við nýbakaða foreldra í parsambandi með framtíðarvellíðan barnsins að leiðarljósi?” Gerð var rýnihóparannsókn þar sem fjögur foreldrapör hittust á rýnihópafundi og ræddu upplifun sína af því að eignast barn. Helstu niðurstöður styðja við fyrri rannsóknir um að fjölskyldulíf og parsamband breytist mikið við fæðingu barns. Einnig sýna niðurstöður að sá stuðningur sem nýttist þátttakendum best var fjölskylda og vinir, ásamt stuðningshópum og þjónustu sem þau sóttust sjálf eftir að fá. Helstu úrræði sem þátttakendur hefðu viljað eru parameðferð, betri dagvistunarúrræði og aukin fræðsla. Að lokum kemur fram að þátttakendum þótti þjónustan sem þau fengu heldur tilviljunarkennd sem getur bent til stefnuleysis og að skýra megi betur ferla, þjónustu og upplýsingar til foreldra um réttindi þeirra og þau úrræði sem í boði eru. This thesis focuses on the interaction between public administration and families in Iceland with regard to children’s well-being. It examines the possible effect of changes in families on parents as couples as well as the implications of those effects for the children and for the public administration. The research question is “How can public administration support new parents as couples to serve the future well-being of the child?” The results are based on a focus group research, where four couples discussed their experience of becoming parents. The results support earlier findings on relationships changing tremendously when a child is born. The findings also show that the most important support was received from family and friends, along with support groups and ...