Teymisvinna, forysta og breytingar - Samstarf stjórnenda íslenskra framhaldsskóla

Teymi eru góð til að fást við flókin verkefni sem margir koma að og eru þau almennt litin jákvæðum augum í stjórnunarfræðum. Til þess að teymi séu skilvirk þarf að veita teymum forystu. Teymi, forysta og teymisforysta eru allt atriði sem krefjast þekkingar og hæfni hjá öllum er taka þátt en sérstakl...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Benedikt Barðason 1966-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/34346
Description
Summary:Teymi eru góð til að fást við flókin verkefni sem margir koma að og eru þau almennt litin jákvæðum augum í stjórnunarfræðum. Til þess að teymi séu skilvirk þarf að veita teymum forystu. Teymi, forysta og teymisforysta eru allt atriði sem krefjast þekkingar og hæfni hjá öllum er taka þátt en sérstaklega hjá þeim sem veita forystu. Þetta skiptir meira máli nú en áður á tímum hraðrar þróunar og krefjandi breytinga. Stjórnendur íslenskra framhaldsskóla standa frammi fyrir því að þurfa að takast á við krefjandi verkefni svo sem nýja tækni, breytta kennsluhætti og aukinn fjölbreytileika. Framkvæmd var rannsókn þar sem skoðuð var verkaskipting stjórnenda í framhaldsskólum og teymisvinna þeirra. Rannsóknin leiddi í ljós að teymisvinna er nokkuð algeng við lausn verkefna. Fram kemur einnig að stjórnendur hafa mikinn áhuga á velferð og sjónarmiðum samstarfsfólks og það skipti þá meira máli að skólastarf sé heildrænt heldur en að ná mælanlegum markmiðum. Viðhorf þeirra til breytinga í framhaldsskólum síðustu ára skiptast í tvö horn en starfsheiti og stærð skóla skýra að nokkru þann mun. Það er hins vegar ljóst að eining ríkir um að margar áskoranir séu framundan í starfi íslenskra framhaldsskóla. Teams are efficient when dealing with complex tasks and generally viewed positively in most management theories. For teams to be effective they need leadership. Teamwork, leadership and team leadership needs knowledge and competence, especially by those who provide the leadership. Administrators of the Icelandic upper secondary school systems face demanding visions of the future and ever changing expectations and projects such as new technology, different teaching methods and increased diversity. This study reveals how managers of the upper secondary schools in Iceland divide their tasks and and how common teamwork is in working on those projects. The study also reveals that administrators have a strong interest in the welfare and opinion of their staff and that it matters more that schooling is inclusive rather than reaching ...