Íslenskur fatahönnunarklasi? Samanburður á uppbyggingu nýrrar atvinnugreinar í tveimur borgum

Rannsóknin snýr að því hvort forsendur séu til þess að stofna fatahönnunarklasa á Íslandi. Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvort það gæti eflt fatahönnunargeirann og stuðlað að aukinni verðmætasköpun. Gerð er grein fyrir upplýsingum um geirann hér á landi og á Norðurlöndum. Litið var til klasafr...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Magnea Einarsdóttir 1986-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Master Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/34277
Description
Summary:Rannsóknin snýr að því hvort forsendur séu til þess að stofna fatahönnunarklasa á Íslandi. Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvort það gæti eflt fatahönnunargeirann og stuðlað að aukinni verðmætasköpun. Gerð er grein fyrir upplýsingum um geirann hér á landi og á Norðurlöndum. Litið var til klasafræða ásamt því að tískuklasi í Osló var heimsóttur og rannsakaður til samanburðar. Tekin voru eigindleg viðtöl við fjölbreyttan hóp fagaðila í Osló og Reykjavík. Niðurstöður viðtalanna voru síðan bornar saman við áðurnefnd fræði og kenningar um klasa. Finna mátti mikinn samhljóm milli landanna. Þarfir norska geirans voru af sama toga og þess íslenska en þar hefur verið unnið markvisst að uppbyggingu undanfarin ár. Norðmenn hafa litið til Danmerkur sérstaklega þar sem fatahönnun er talin til helstu útflutningsgreina. Í ljósi þessa má álykta að fyrir greinina hér á Íslandi væri réttara að líta til Noregs þar sem sambærileg vinna hefur verið unnin á undanförnum árum og þörf er á hér. Norski tískuklasinn var stofnaður árið 2014 og hefur velta fatahönnunar aukist um 17% síðan. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að fatahönnunargeirinn er of lítill hér á landi til að mynda klasa. Fatahönnun er mun tengdari viðskiptalífinu en margar aðrar hönnunargreinar. Þó skortir íslenska fatahönnuði þekkingu á viðskiptahlið geirans. Með víðari skírskotun yfir í fleiri hönnunargreinar gæti reynst auðveldara að fá öflug fyrirtæki til liðs við klasann og efla þannig viðskiptafærni með það að markmiði að auka verðmætasköpun og stuðla að auknum útflutning á íslenskri hönnun. Lykilorð: Tískuiðnaður, fatahönnun, klasi The aim of this project is to explore the possibilities of forming a fashion cluster in Reykjavik, based on a similar cluster in Oslo. The goal is to see whether such cluster could boost the fashion industry and create more value. Facts on the Nordic fashion industries were researched as well as theories on clusters and professionals in Oslo and Reykjavik were interviewed. A lot was found in common between the two cities. ...