Hverjar eru helstu persónulegu- og félagslegu áskoranir hjá nemendum í sérdeildum í Reykjavík og sérskólum? : greinargerð með heimsíðu

Foreldrar barna með sérþarfir standa frammi fyrir því verkefni að leikskóla loknum að taka ákvörðum um það hvar barnið skuli stunda grunnskólanám. Einnig eru það foreldrar fatlaðra barna sem fara í heimaskóla sinn og finnst skólinn ekki standast þær kröfur til náms og sérþarfa barnsins, sem standa f...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Sylvía Kristinsdóttir 1986-, Sara Waage 1988-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Bachelor Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/34237
Description
Summary:Foreldrar barna með sérþarfir standa frammi fyrir því verkefni að leikskóla loknum að taka ákvörðum um það hvar barnið skuli stunda grunnskólanám. Einnig eru það foreldrar fatlaðra barna sem fara í heimaskóla sinn og finnst skólinn ekki standast þær kröfur til náms og sérþarfa barnsins, sem standa frammi fyrir þeirra ákvörðun hvort skuli velja sérskóla eða sérdeild fyrir barnið. Umræða um sérskóla og sérdeildir hefur verið mikil innan samfélagsins upp á síðkastið og er fólk með misjafnar skoðanir á þeim. Einhverju fólki finnst vanta fleiri sérúrræði sem þessi en aðrir vilja sjá öll börn í almennum grunnskóla og loka sérskólum og sérdeildum. Hverju sem því líður þá getur ákvörðun sem þessi verið yfirþyrmandi að þurfa að leita sér allra þeirra upplýsinga sem tilheyrir því að senda barn í annarskonar sértækt úrræði. Foreldrar vilja það besta fyrir börnin sín og þarf því að vanda valið og mikilvægt að kynna sér allt það sem stendur þeim til boða. Við upphaf verkefnisins komumst við að því að þessar upplýsingar eru ekki auðfundnar og oft þarf að leita að þeim þar sem þær ættu að vera aðgengilegar. Við unnum heimasíðuna www.serskolar.net þar sem að við fundum til allar þær upplýsingar sem við töldum skipta höfuðmáli, þegar kemur að vali og settum þær í einfaldan texta fyrir hvern skóla fyrir sig. Einnig fundum við til upplýsingar um akstursþjónustu og aðrar upplýsingar um skólana sem fjallað er um. Með þessu vonum við að foreldrar og aðstandendur barna með sérþarfir eigi greiðari leið að öllum þessum upplýsingum og eigi auðveldara með að átta sig á hvaða úrræði sé best fyrir þeirra barn.