Atvinnumöguleikar fatlaðs fólks í Reykjavík

Í verkefninu er leitast við að svara spurningunni: Hverjir eru atvinnumöguleikar fatlaðs fólks í Reykjavík eftir framhalds- og/eða háskólanám? Verkefnið er byggt upp sem rannsóknarritgerð og notast er við fræðileg gögn og upplýsingar af Internetinu ásamt úrvinnslu úr viðtölum við starfsmann Velferða...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Sigrún Stefanía Þorvaldsdóttir 1991-, Brynja Sóley Stefánsdóttir 1987-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/34223
Description
Summary:Í verkefninu er leitast við að svara spurningunni: Hverjir eru atvinnumöguleikar fatlaðs fólks í Reykjavík eftir framhalds- og/eða háskólanám? Verkefnið er byggt upp sem rannsóknarritgerð og notast er við fræðileg gögn og upplýsingar af Internetinu ásamt úrvinnslu úr viðtölum við starfsmann Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og starfsmann Vinnumálastofnunar ásamt öðrum munnlegum heimildum. Samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks skulu aðildarríkin gera viðeigandi ráðstafanir til þess að gera fötluðu fólki kleift að stunda atvinnu, skapa fyrir það atvinnutækifæri og veita því greiðan aðgang að starfsráðgjöf og atvinnumiðlun. Þrátt fyrir þessi ákvæði í samningnum er raunveruleiki íslensks fatlaðs fólks sá að aðeins einn þriðji þeirra er með fasta atvinnu. Reykjavíkurborg rekur tvo starfsstaði fyrir fatlað fólk eins og er en áform eru um miklar og nauðsynlegar breytingar hjá borginni. Með þeim breytingum aukast atvinnutækifæri fatlaðs fólks til muna bæði í formi launaðrar vinnu og virkniúrræða. Fjölbreyttari störf verða í boði og vonandi ættu allir að geta fundið starf innan síns áhugasviðs og getu.