Fjallið, fjaran og skógurinn : þátttaka nemenda í mati á þróunarverkefni um útivinnu í nærumhverfi skóla

Í hverjum skóla er unnið að skólaþróun og leitað leiða til að bæta skólastarf nemendum til hagsbóta. Til að ótvíræður árangur náist er skipulagt og vel útfært mat nauðsynlegt. Í þessari rannsókn var lagt mat á þróunarverkefnið Fjallið, fjaran og skógurinn sem byggði á samstarfi tveggja skóla á höfuð...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Örn Halldórsson 1964-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/34186
Description
Summary:Í hverjum skóla er unnið að skólaþróun og leitað leiða til að bæta skólastarf nemendum til hagsbóta. Til að ótvíræður árangur náist er skipulagt og vel útfært mat nauðsynlegt. Í þessari rannsókn var lagt mat á þróunarverkefnið Fjallið, fjaran og skógurinn sem byggði á samstarfi tveggja skóla á höfuðborgarsvæðinu. Í matinu var sérstök áhersla lögð á þátttöku nemenda og reynsla þeirra af útivinnu í nokkuð ólíku nærumhverfi greind. Rannsóknin byggði á vinnu með tólf ára nemendum sem tóku þátt í vettvangsferðum í nærumhverfi beggja skólanna. Alls tóku 32 nemendur þátt í rannsókninni, 16 úr hvorum skóla og komu allir til viðtals fyrir og eftir vettvangsferðirnar, í fjögurra manna hópum, fjórir hópar úr hvorum skóla. Kynjahlutfall var jafnt. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til að nemendur hafi jákvætt viðhorf til útivinnu og telja að meira mætti gera af því að vinna verkefni þar sem umhverfið er nýtt bæði sem vettvangur og viðfangsefni námsins. Skýrt kom fram að nærumhverfi skóla nemenda veitir þeim bæði ánægju og öryggi við að nálgast verkefni sem þeim eru falin af kennara. Niðurstöðurnar benda einnig til að kennarar þurfi stuðning og hvatningu til að nota nærumhverfi skólans í daglegu skólastarfi en þröskuldurinn er ekki áhugi nemenda – þeir eru bæði áhugasamir og reiðubúnir til útivinnu sem meðal annars felur í sér eftirsóknarverða tilbreytingu. In every school a school development work is ongoing, with the aim of making better education for students. To ensure that the outcome of every project is as intended, schools need to implement well organized and precise evaluation of their work. In this research the development project, The mountain, the seashore and the forest is evaluated. This project was a joint work of two elementary schools in the Reykjavík area. In the evaluation process special emphasis was made on students´ participation and the attitude and experience of students´ outdoor work in the two schools where their local environment is very different. The research is grounded on a work with 12 year ...