Yngstu börnin og upplýsingatækni

Þessi rannsókn er starfendarannsókn sem hefur það að markmiði að skoða með hvaða hætti ég get sem verkefnastjóri haft jákvæð áhrif og vakið áhuga starfsfólks á upplýsingatækni með ungum börnum á yngstu deildinni í leikskólanum Reynisholti í Reykjavík. Tilgangurinn með verkefninu er einnig að læra af...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sunneva Svavarsdóttir 1991-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/34177
Description
Summary:Þessi rannsókn er starfendarannsókn sem hefur það að markmiði að skoða með hvaða hætti ég get sem verkefnastjóri haft jákvæð áhrif og vakið áhuga starfsfólks á upplýsingatækni með ungum börnum á yngstu deildinni í leikskólanum Reynisholti í Reykjavík. Tilgangurinn með verkefninu er einnig að læra af því ferli sem á sér stað og þróa áfram faglegt leikskólastarf. Hlutverk mitt var að gefa kennurum og starfsmönnum deildarinnar verkfæri til þess að halda áfram að nýta upplýsingatækni í samstarfi við stjórnendur leikskólans. Rannsóknin var gerð samhliða verkefnastjórn við þróunarverkefnisins Yngstu börnin og upplýsingatækni og byggir á þeim gögnum sem ég aflaði með rannsóknardagbók og viðtölum við þátttakendur þróunarverkefnisins. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna fram á að það er vilji til þess meðal starfsfólks að breyta kennsluháttum og innleiða upplýsingatækni í starfið. Fram komu ólík viðhorf starfsfólksins til upplýsingatækni með börnum í leikskóla, þó svo að allir hafi verið sammála um það að upplýsingatækni sé komin til að vera. Leikskólinn starfar eftir þeim stefnum sem menntamálayfirvöld setja, í formi aðalnámskrár og stefnu Reykjavíkurborgar og því er upplýsingatækni einn af þeim námsþáttum sem leikskólinn á að vera með í daglegu starfi. Megin niðurstaða rannsóknarinnar sýnir að með dyggum stuðningi og ráðgjöf tókst að hafa jákvæð áhrif á starfsfólkið m.a. með fræðslu, verklegum æfingum og umræðum um þau viðfangsefni sem starfsfólkið var að takast á við. Þannig fékk allt starfsfólkið tækifæri til þess að auka þekkingu sína og færni og sameiginlega tókst það á við nýjar áskoranir. Það varð til þess að starfsfólkið tók þátt og efldi þekkingu sína og færni í anda lærdómssamfélagsins í leikskólanum. This research is an action research that aims to examine how I, as a project manager, can have a positive impact and arouse the interest among the employees about information technology with young children in the youngest department in the kindergarten Reynisholt in Reykjavik. The purpose of this research is also ...