Hugmyndir barna og reynsla kennara af Vináttuverkefni Barnaheilla

Undanfarin ár hefur verið lögð aukin áhersla á þátttöku barna í samfélaginu og að þau séu virkir þátttakendur í eigin lífi. Kenningar og þekking á námi og þroska barna hafa sýnt að börn eru sérfræðingar í eigin lífi. Rannsóknum þar sem börn eru virkir þátttakendur hefur því fjölgað og áhugi fyrir þv...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Elsa Margrét Árnadóttir 1987-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/34175
Description
Summary:Undanfarin ár hefur verið lögð aukin áhersla á þátttöku barna í samfélaginu og að þau séu virkir þátttakendur í eigin lífi. Kenningar og þekking á námi og þroska barna hafa sýnt að börn eru sérfræðingar í eigin lífi. Rannsóknum þar sem börn eru virkir þátttakendur hefur því fjölgað og áhugi fyrir því að hlusta á raddir þeirra hefur aukist. Þessar áherslur má einnig sjá í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins frá árinu 1989. Þar segir að börn eigi að vera virkir þátttakendur í samfélaginu og að líta eigi á þau sem hæfileikaríka einstaklinga sem eigi rétt á þátttöku. Markmiðið með þessari rannsókn var annars vegar að fá fram hugmyndir barna og hins vegar reynslu kennara af Vináttuverkefni Barnaheilla (e. Free of bullying project), sem er forvarnarverkefni gegn einelti. Þátttakendur í rannsókninni voru 21 barn í elsta árgangi á þremur deildum í einum leikskóla og þrír kennarar. Rannsóknin var eigindleg og var hún unnin í leikskóla barnanna. Í rannsókninni var lögð áhersla á að veita börnunum tækifæri til að tjá sína skoðun á þátttöku sinni og hvað þau teldu sig læra af vináttuverkefninu. Tilgangur rannsóknarinnar er að vinna með þær upplýsingar sem koma frá börnunum til þess að kennararnir geti bætt það sem betur má fara. Niðurstöður rannsóknar sýndu að börnin læra mikilvægi þeirra gilda sem verkefnið snýst um. Þau læra að bera virðingu fyrir öðrum, sýna hvert öðru umburðarlyndi og umhyggju og öðlast hugrekki til þess að aðstoða aðra ef á þarf að halda. Kennararnir þrír eru á sama máli, þeim finnst þetta verkefni einstaklega áhugavert og gaman að fylgjast með því hve börnin eru fljót að tileinka sér gildi verkefnisins. Fáar rannsóknir hafa verið gerðar í tengslum við vináttuverkefnið og þær hafa aðallega snúið að kennurum og kennsluaðferðum þeirra. Þessi rannsókn er því mikilvæg að því leyti að hún sýnir sjónarhorn barnanna og kennaranna og veitir því góða innsýn í þátttöku þeirra í verkefninu. In recent years, there has been an increased emphasis on children’s participation in society as active ...