„Sá sem vill finnur leið - sá sem ekki vill finnur afsökun“ : innleiðing leiðsagnarnáms í Hulduskóla

Sjálfsrýni og þátttaka í skólaþróunarverkefnum hefur veruleg áhrif á fagmennsku kennara og eflir skólasamfélagið. Rannsóknin fjallar um innleiðingu leiðsagnarnáms í grunnskóla í Reykjavík. Tilgangur og markmið hennar er að skoða þróun mína í starfi og þá þætti sem hafa áhrif á starfsþróun og fagmenn...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Þórdís Ívarsdóttir 1966-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/34169
Description
Summary:Sjálfsrýni og þátttaka í skólaþróunarverkefnum hefur veruleg áhrif á fagmennsku kennara og eflir skólasamfélagið. Rannsóknin fjallar um innleiðingu leiðsagnarnáms í grunnskóla í Reykjavík. Tilgangur og markmið hennar er að skoða þróun mína í starfi og þá þætti sem hafa áhrif á starfsþróun og fagmennsku kennara, hvernig innleiðing skólaþróunarverkefnis gengur á rótgrónum vinnustað og hvort hugmyndir leiðsagnarnáms festist í sessi í skólanum. Hulduskóli tók þátt í þróunarverkefni á vegum skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar skólaárin 2017 - 2019 en þar var unnið út frá aðferðafræði Shirley Clarke sem byggir einkum á því að skapa námsmenningu þar sem áhersla er lögð á nám og ábyrgð nemenda, samvinnu, samræður, skýr námsmarkmið og viðmið, vaxandi hugarfar, áskoranir og stöðuga endurgjöf. Rannsóknin er starfendarannsókn þar sem ég skoðaði eigin starfshætti og skráði í rannsóknardagbók. Auk þess tók ég fimm einstaklingsviðtöl við kennara Hulduskóla. Gagna var aflað frá hausti 2017 til ársloka 2018 og voru þau greind í efnisflokka. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að með ígrundun eigin starfshátta þróuðust kennsluhættir mínir, jafnframt hefur námsmenning skólans breyst í takt við hugmyndir leiðsagnarnáms þar sem aukin áhersla er lögð á þrautseigju, samræður og samvinnu og hef ég sem og aðrir kennarar Hulduskóla aðlagað hugmyndafræði og aðferðir leiðsagnarnáms ríkjandi kennsluháttum. Kennarar telja að sjálfsrýni og þátttaka í skólaþróunarverkefni sem þessu efli fagmennsku þeirra og hafi jákvæð áhrif á allt skólasamfélagið. Jafnframt benda niðurstöður rannsóknarinnar til að skólastjórnendur og aðrir innleiðendur gegni lykilhlutverki í skólaþróun og getur innleiðing þróunarverkefna staðið og fallið með þeim. Aðferðir leiðsagnarnáms hafa haft jákvæð áhrif á skólasamfélag Hulduskóla og eflt námsmenningu. Mikilvægt er að huga að starfsþróun kennara og gefa kennurum tíma til þess að efla fagmennsku sína. Til þess að breytingar verði við innleiðingu skólaþróunarverkefna þurfa innleiðendur að vera í fararbroddi ...