Hvað telst vera „alvöru“ nám? : formlegt og óformlegt nám

Þessi lokaritgerð fjallar um formlegt og óformlegt nám, hvernig þetta tvennt er skilgreint með lögum frá Alþingi og meðal fræðimanna á Íslandi. Notast verður við kenningar Pierre Bourdieu og Howards Gardner þar sem þær falla vel að hugmyndum um báðar tegundir þess náms sem verða skoðaðar. Meginranns...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kristín Halla Haraldsdóttir 1973-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/34090
Description
Summary:Þessi lokaritgerð fjallar um formlegt og óformlegt nám, hvernig þetta tvennt er skilgreint með lögum frá Alþingi og meðal fræðimanna á Íslandi. Notast verður við kenningar Pierre Bourdieu og Howards Gardner þar sem þær falla vel að hugmyndum um báðar tegundir þess náms sem verða skoðaðar. Meginrannsóknarspurningin lýtur að því hvort að hægt sé að tengja enn betur saman milli formlegs náms sem verður til innan veggja menntastofnana og óformlegs náms sem verður til í tómstundum, þannig að þeir nemendur sem sækja sér þekkingar utan veggja menntastofnana geti fengið það meira metið inn í námið sitt innan Aðalnámskrá bæði grunn og framhaldsskóla. Bourdieu fjallar um einstaklinginn út frá því sem viðkomandi lærir af lífinu og hvernig hann nýtir það innan samfélagsins. Howard Gardner skoðar hvernig mannshugurinn virkar og nýtir þær greindir sem við höfum yfir að ráða til náms. Skoðuð verða stjórnsýslulög og reglugerðir sem taka til grunnskóla, tómstunda og frítíma, ásamt þeim hugtökum sem mest koma fyrir þegar þessi málefni eru rædd. Íslenskar rannsóknir og fræðigreinar verða skoðaðar til að fá sem raunhæfasta mynd af því sem er að gerast á Íslandi um þessar mundir innan mennta- og tómstundastarfs. Skoðaðar verða menntastefnurnar „skóli án aðgreiningar“ og „einstaklingsmiðað nám“ út frá kenningum Bourdieu og Gardners með tengingu við nýtingu óformlegs náms með formlegu námi. Rætt verður um niðurstöður úr samanburði á því efni sem hægt er að finna og reynt að sjá heildarmynd út úr því sem er að gerast í dag innan menntamála og síðan þess sem er að gerast á sviði tómstundamenntunar og hvernig síðan þetta er að skila sér út í æskulýðsstarfið. This essay deals with formal and informal learning, how these two are defined by law from parliament and among scholars in Iceland. The theorys of Pierre Bourdieu and Howards Gardner will be used as they reflect on the concepts of both types of study. The main research question relates to whether that can be better connected between formal and informal learning so that students who ...