Sköpunarsmiðja í leikskóla : samskipti barna í vinnu með snjalltækni

Meistaraverkefni þetta er rannsókn, sem unnin var á deild elstu barna leikskóla á Akureyri haustið 2018, nánar tiltekið í mars fram í júní sama ár. Börnin eru níu, sem tóku þátt í rannsókninni og öll eru þau fædd árið 2012. Fyrirkomulagið var á þá leið, að tvisvar í viku hitti rannsakandi börnin í s...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Herdís Ólöf Pálsdóttir 1983-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/33952
Description
Summary:Meistaraverkefni þetta er rannsókn, sem unnin var á deild elstu barna leikskóla á Akureyri haustið 2018, nánar tiltekið í mars fram í júní sama ár. Börnin eru níu, sem tóku þátt í rannsókninni og öll eru þau fædd árið 2012. Fyrirkomulagið var á þá leið, að tvisvar í viku hitti rannsakandi börnin í smiðjum, sem stóðu klukkustund í senn. Smiðjurnar urðu sex talsins og náðu því yfir þrjár vikur. Rannsóknin miðaði að því að skoða samskipti barnanna meðan á verkefninu stóð, m.a. félagsfærni, sjálfstraust og samvinnu þeirra í vinnu með tækni. Börnin fengu frjálsar hendur til að skapa umhverfi og sögusvið fyrir snjalltækin Blue-bot og Cubelets en einnig með Lego-kubbum og tilbúnum sögupersónum, sem þau skópu sér sjálf meðan á smiðjunum stóð. Enn sem komið er fer lítið fyrir forritun barna á leikskólaaldri. Vonandi verður breyting þar á. Fátt ætti að vera því til fyrirstöðu. Leitað var svara við eftirfarandi rannsóknarspurningum: • Hvað einkennir samskipti fimm ára barna, þegar þau vinna með Blue-bot og Cubelets? • Hvernig birtist sjálfstraust barna í vinnu með Blue-Bot og Cubelets? Niðurstöður sýna að forritunarvinna sem þessi kallar á aukin samskipti, samvinnu og málamiðlanir barna sín á milli. Samvinna barnanna með snjalltækjunum blés nýju lífi í leik og nám þeirra. Börnin voru iðin og áhugasöm um snjalltækin og voru fljót að tileinka sér þessa nýju tækni. Greina mátti framfarir hjá þeim öllum, bæði hvað varðar vinnu þeirra með tækin og samskiptafærni sín á milli. Jafnframt óx börnunum sjálfstraust eftir því sem sköpunarsmiðjunum fjölgaði og urðu ófeimnari við það að prófa sig áfram. This assignment is a part of a Master of Education research project conducted in a participating kindergarten in Akureyri in the spring of 2018, more specifically from March until the end of June that same year. The nine children who participated in the study were all born in 2012. Twice a week the researcher met the children in workshop for one hour each time. The workshop where six in total and reached over three weeks. The study ...