Hagnýting upplýsingatækni í skólastarfi : hver eru viðhorf og upplifun framhaldsskólakennara og nemenda gagnvart upplýsingatækni í kennslu og námi?
Haustið 2018 hóf höfundur vettvangsnám við framhaldsskóla á Norðurlandi í námi sínu í menntunarfræðum við Háskólann á Akureyri. Þar framkvæmdi höfundur vettvangsathugun þar sem fylgst var með hvort og hvernig nemendur nota snjallsíma í kennslustundum. Áhugaverðar niðurstöður vettvangsathugunarinnar...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2019
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/33951 |
Summary: | Haustið 2018 hóf höfundur vettvangsnám við framhaldsskóla á Norðurlandi í námi sínu í menntunarfræðum við Háskólann á Akureyri. Þar framkvæmdi höfundur vettvangsathugun þar sem fylgst var með hvort og hvernig nemendur nota snjallsíma í kennslustundum. Áhugaverðar niðurstöður vettvangsathugunarinnar urðu síðan kveikjan að þessari rannsókn. Markmið rannsóknarinnar var að skoða notkun upplýsingatækni í kennslu og námi, frá sjónarhorni kennara annars vegar og frá sjónarhorni nemenda hinsvegar. Lögð var áhersla á að skoða viðhorf og upplifun kennara og nemenda á hagnýtingu upplýsingatækni og hvaða helstu áskoranir og tækifæri þar felast. Rannsóknin er eigindleg og voru þátttakendur sex framhaldsskólakennarar og sex nemendur úr sama skóla auk þess sem stuðst var við niðurstöður úr vettvangsathugun höfundar. Kennararnir voru frá fertugu og uppí sextugt og hafa mislanga kennslureynslu. Tekin voru hálf-opin einstaklingsviðtöl við kennarana og rýnihópaviðtal við nemendur og var kynjahlutfall jafnt hjá þátttakendum í báðum hópum. Helstu niðurstöður benda til að margir kennarar virðast tilbúnir til þess að fara á fullt í hagnýtingu upplýsingatækni í kennslu en kemur einnig fram að sumir kennarar upplifa pressu frá stjórnendum að þeir tileinki sér upplýsingatæknina meðan aðrir túlka það frekar sem hvatningu og stuðning. Kennararnir eru sammála um að mikil áhersla sé lögð á upplýsingatækni í skólanum sem þau starfa við, endurmenntunartækifæri séu allsstaðar þó kennarar þurfi oft að sækjast eftir þeim sjálfir. Einnig nefna þeir að metnaður skólastjórnenda varðandi hagnýtingu upplýsingatækni stangist á við tækniaðstæður og búnað skólans og þar vanti uppá svo hægt sé að þróa sig áfram í notkun upplýsingatækni. Kennarar eru heilt yfir duglegir að styðja og kenna hvor öðrum og hafa myndað hóp upplýsingatæknimentora sem eru til aðstoðar. Nemendum virðist ganga vel að hafa stjórn á snjalltækjanotkun sinni og oftar en ekki eru þeir að nota tækin sér til gagns í kennslustundum en ekki til afþreyingar. Þrátt fyrir að ... |
---|