Áhrif klamydíu á frjósemi : hvað er til ráða og hver er þekking ungmenna á sýkingunni?

Verkefnið er lokað til 09.05.2020. Rannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni til B.S. prófs í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Megintilgangur fyrirhugaðrar rannsóknar er að kanna hvort þörf sé á skipulagðri skimun fyrir klamydíu hjá einstaklingum á aldrinum 15 til 24 ára. Rannsóknarspurningarna...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Andrea Dögg Jóhannsdóttir 1995-, Elín Eik Stefánsdóttir 1995-, Fanndís Ósk Björnsdóttir 1995-, Sigríður Atladóttir 1996-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/33933
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 09.05.2020. Rannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni til B.S. prófs í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Megintilgangur fyrirhugaðrar rannsóknar er að kanna hvort þörf sé á skipulagðri skimun fyrir klamydíu hjá einstaklingum á aldrinum 15 til 24 ára. Rannsóknarspurningarnar eru eftirfarandi: 1) Er þörf á skipulagðri skimun fyrir klamydíu á Íslandi hjá ungu fólki á aldrinum 15 til 24 ára? 2) Er ungt fólk á Íslandi að fara reglulega/árlega í skimun? 3) Gerir ungt fólk sér grein fyrir afleiðingum klamydíusýkinga í tengslum við ófrjósemi? Við fyrirhugaða rannsókn verður notast við megindlega aðferðarfræði. Við gagnasöfnun verður lagður spurningalisti fyrir úrtakið sem á m.a. að meta þekkingu þeirra á klamydíu og afleiðingum hennar. Úrtak fyrirhugaðrar rannsóknar er ungt fólk á Íslandi óháð kyni og búsetu innan landsins. Skilyrði fyrir þátttöku í rannsókninni er að vera á aldrinum 15 til 24 ára, vera íslenskumælandi og hafi vitsmuni til að svara spurningalistanum. Nýgengi klamydíusýkinga á Íslandi er með því hæsta sem þekkist í heiminum en u.þ.b. 2000 tilfelli greinast árlega. Klamydía er kynsjúkdómur sem smitast á milli einstaklinga við kynmök og orsakast af bakteríunni Chlamydia trachomatis. Klamydía er oftast einkennalaus og geta einstaklingar borið sýkinguna í lengri tíma. Sýkingin getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér eins og ófrjósemi. Með fyrirhugaðri rannsókn vonast rannsakendur til þess að vekja ungt fólk til umhugsunar um afleiðingar klamydíu og mikilvægi skimunar. Jafnframt er það von rannsakenda að niðurstöður fyrirhugaðar rannsóknar efli vitund hjúkrunarfræðinga og almennings um klamydíu. Lykilhugtök: Klamydía, ófrjósemi, heilbrigðisfræðsla, forvarnir og hjúkrun. This protocol is a final project for a B.S. thesis for a Nursing degree from the University of Akureyri. The main purpose of the intended study is to examine the need for planned screening for chlamydia infection among young people from the age of 15 to 24 years old in Iceland. The researchers will aim to ...