Summary: | Þessi rannsóknaráætlun er lokaverkefni til B.S. prófs í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Markmið rannsóknaráætlunarinnar er undirbúningur rannsóknar sem fjalla mun um reynslu fagfólks af stuðningi og áfallaþjónustu fyrir aðstandendur í kjölfar sjálfsvíga ástvina. Í kjölfarið væri hægt að nota niðurstöður rannsóknarinnar til að búa til ákveðna verkferla sem myndu nýtast heilbrigðisstarfsfólki og viðbragðsaðilum til að veita betri þjónustu. Fjöldi sjálfsvíga hefur aukist töluvert á síðustu árum, en tíðnin virðist þó vera mismunandi eftir löndum. Sjálfsvíg eru flókin fyrirbæri sem skilja eftir sig brotna aðstandendur og ástvini. Óljóst er hver grípur ástvinina í fallinu þegar sjálfsvíg hefur átt sér stað en fagaðilar reyna sitt besta við að aðstoða þennan aðstandendahóp. Í rannsóknaráætluninni verður stuðst við eigindlega rannsóknaraðferð Vancouver-skólans í fyrirbærafræði. Höfundar rannsóknaráætlunarinnar settu þessa rannsóknarspurningu fram sem reynt verður að svara í rannsókninni: Hver er reynsla fagfólks af stuðningi og áfallaþjónustu fyrir aðstandendur eftir sjálfsvíg ástvina? Rannsóknir sýna að auka mætti þjónustu við aðstandendur eftir sjálfsvíg. Aðstandendur og ástvinir standa oft eftir einir og vita ekki hvert skal leita eftir aðstoð. Í rannsóknaráætluninni verður fjallað um þau úrræði sem eru í boði frá fagaðilum til aðstandenda eftir sjálfvíg ástvina. Tekin verða viðtöl við fagaðila á mismunandi sviðum til að finna út heildarmyndina á því hvernig verklagsreglurnar eru á þeirra sviði. Lykilhugtök: Áfallahjálp, aðstandendur, sjálfsvíg, sorg og heilbrigðiskerfi. This reasearch proposal is a final thesis for B.S. degree in nursing science in the University of Akureyri. The purpose of the project is to prepare for ongoing research that will explore the experience of professionals for support and trauma counseling available to relatives after suicide. Furthermore the study could find certain processes that could be set up to refine the service. Suicide has increased considerably in the recent years, ...
|