Brjóstagjöf á Íslandi : reynsla mæðra af stuðningi og fræðslu frá heilbrigðisfagaðilum um brjóstagjöf

Rannsóknaráætlun þessi er sett fram sem lokaverkefni til B.S. gráðu í hjúkrunarfræði við Heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri. Rannsóknaráætlunin miðar að því að kanna reynslu mæðra á Íslandi af stuðningi og fræðslu við brjóstagjöf frá heilbrigðisfagaðilum. Áhersla er á að brjóstamjólkin sé b...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Arna Hrönn Árnadóttir 1994-, Helga Jóna Guðjónsdóttir 1994-, Jónína Rún Agnarsdóttir 1994-, Snædís Sara Guðjónsdóttir 1994-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/33920
Description
Summary:Rannsóknaráætlun þessi er sett fram sem lokaverkefni til B.S. gráðu í hjúkrunarfræði við Heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri. Rannsóknaráætlunin miðar að því að kanna reynslu mæðra á Íslandi af stuðningi og fræðslu við brjóstagjöf frá heilbrigðisfagaðilum. Áhersla er á að brjóstamjólkin sé besta næring nýburans en brjóstagjöf getur haft ýmis vandamál í för með sér. Mæður, bæði frumbyrjur og fjölbyrjur, tala um skort á stuðning og fræðslu í tengslum við brjóstagjöf og er því líklegra að þær hætti brjóstagjöf fyrr en ráðleggingar segja til um. Einnig hafa þær nefnt að fræðslan mætti koma inn í ferlið fyrr en hún gerir nú þegar. Bendir það til mikilvægi þess að þörf sé á að skoða hvernig fræðslu og stuðning er háttað á þessu sviði og telja rannsakendur því að fyrirbærafræðileg nálgun eigi best við og gefi djúpa innsýn í efnið. Stuðst yrði við fyrirbærafræðilega nálgun Vancouver-skólans sem byggist á 12 þrepum. Notast yrði við tilgangsúrtak sem samanstæði af mæðrum á mismunandi aldursbili og frá mismunandi stöðum á landinu. Gagnasöfnun færi fram í gegnum einstaklingsviðtöl. Markmið rannsakenda er að niðurstöður rannsóknarinnar stuðli að vitundarvakningu um reynslu mæðra á fræðslu og stuðning við brjóstagjöf frá heilbrigðisfagaðilum. Með því er von að niðurstöður rannsóknarinnar geti verið hagnýtar í stefnumótun heilbrigðisstofnana sem koma að markhópnum. Lykilhugtök: Brjóstagjöf, stuðningur, fræðsla This thesis is a final project to the completion of a B.S. degree in nursing from the University of Akureyri. The aim of this proposed study is to explore the support and education mothers in Iceland receive from healthcare professionals related to breastfeeding. Much emphasis is put upon the fact that breast milk is the best nourishment for newborns, but many difficulties may arise when a mother is breastfeeding. Mothers, both primiparous and multiparous, talk about the lack of support and education on breastfeeding and are therefore more likely to stop breastfeeding earlier than recommended. Another concern ...