Hin hljóðu tár : reynsla kvenna af fósturmissi og þörf þeirra fyrir stuðning

Þessi rannsóknaráætlun er lokaverkefni til B.S. prófs í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Fyrirhugaðri rannsókn er ætlað að rannsaka sálfélagsleg áhrif fósturláta á konur og þannig varpa ljósi á þann stuðning sem þær þurfa. Fósturlát eru algeng og geta haft mikil áhrif á líðan kvenna. Erlenda...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Anna Helga Ragnarsdóttir 1985-, Birna Dröfn Birgisdóttir 1982-, Lilja Huld Friðjónsdóttir 1992-, Telma Ýr Sigurðardóttir 1986-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/33915
Description
Summary:Þessi rannsóknaráætlun er lokaverkefni til B.S. prófs í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Fyrirhugaðri rannsókn er ætlað að rannsaka sálfélagsleg áhrif fósturláta á konur og þannig varpa ljósi á þann stuðning sem þær þurfa. Fósturlát eru algeng og geta haft mikil áhrif á líðan kvenna. Erlendar rannsóknir hafa sýnt að margar konur kalla eftir auknum stuðningi frá heilbrigðisstarfsmönnum. Mörgum finnst sorg þeirra ekki metin til jafns við sorg vegna annars konar missis, því geti þær ekki leitað eftir stuðningi í sínu nánasta umhverfi og eiga það til að einangrast vegna reynslu sinnar. Þetta viðfangsefni hefur lítið verið rannsakað hér á landi og er það von höfunda að með fyrirhugaðri rannsókn verði hægt að meta stuðningsþörf íslenskra kvenna sem ganga í gegnum fósturmissi. Með auknum skilningi og þekkingu er hægt að hlúa betur að þessum konum, með það að markmiði að stuðla að betri líðan og draga úr neikvæðum áhrifum reynslunnar á líf þeirra. Rannsóknarspurningin sem lagt var upp með er: Hver er reynsla kvenna af fósturmissi og þörf þeirra fyrir stuðning frá samfélaginu og heilbrigðisstarfsfólki? Í fyrirhugaðri rannsókn verður notast við eigindlega rannsóknaraðferð og stuðst við fyrirbærafræði Vancouver-skólans. Tekin verða tvö hálfstöðluð djúpviðtöl við 12-14 konur sem uppfylla skilyrði úrtaksins. Höfundar völdu þetta rannsóknarsnið þar sem þeim þótti það henta vel til að nálgast fyrirbærið með opnum hug og þannig fá innsýn inn í reynsluheim kvenna sem misst hafa fóstur. Lykilhugtök: fósturlát, reynsla, stuðningur, samfélag, hjúkrun. This research proposal is a final thesis towards a B.S. degree in nursing at the University of Akureyri. The main objective is to study the psychosocial effects of miscarriages on women and to elucidate the support they need. Miscarriage is common and can have a profound effect on women’s well-being. Foreign researches have shown that many women feel the need for more support from health-care personnel. Many women feel that their grief is not validated equally to grief ...