Lífsleikni : þróun og gildi lífsleikni í íslensku skólakerfi

Verkefni þetta er lokaverkefni til B.Ed.-prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Ritgerðin fjallar um námsgreinina lífsleikni, birtingarmynd hennar og þróun í íslensku skólakerfi. Áhersla er lögð á að skoða og fjalla um hvernig lífsleikni birtist í Aðalnámskrá grunnskóla og bera núgildandi og e...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Matthildur Ósk Óskarsdóttir 1995-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/33859
Description
Summary:Verkefni þetta er lokaverkefni til B.Ed.-prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Ritgerðin fjallar um námsgreinina lífsleikni, birtingarmynd hennar og þróun í íslensku skólakerfi. Áhersla er lögð á að skoða og fjalla um hvernig lífsleikni birtist í Aðalnámskrá grunnskóla og bera núgildandi og eldri námskrár saman. Ritgerðin hefst á fræðilegu yfirliti um þróun íslenska skólakerfisins, grunnskólalaga og Aðalnámskrár grunnskóla. Síðan er námsgreinin lífsleikni skilgreind. Meginmarkmið ritgerðarinnar er að kanna hvert gildi lífsleikni er í grunnskólalögum og Aðalnámskrá grunnskóla. Miklar og hraðar breytingar hafa átt sér stað í samfélaginu og á skólakerfinu á undanförnum áratugum og skólarnir hafa fengið aukið uppeldisfræðilegt hlutverk. Lífsleiknin var sett fram sem ný námsgrein árið 1999 til þess meðal annars að svara þessari kröfu um uppeldishlutverk skólanna. Lífsleikni er í grunninn siðfræði og hlutverk hennar er að efla alhliða þroska nemenda. Litlar breytingar hafa orðið á megin viðfangsefnum lífsleikni frá því að námsgreinin kom fyrst fram en hver aðalnámskrá fyrir sig hefur komið með sínar áherslur. Gildi námsgreinarinnar lífsleikni í grunnskólalögum og Aðalnámskrá grunnskóla hefur aukist með hverri lagasetningu og námskrá fyrir sig. Í núgildandi Aðalnámskrá grunnskóla er lífsleiknin eða viðfangsefni hennar áberandi og tekur á öllum helstu þáttum sem eiga að vera grunnurinn í íslenskri menntastefnu. This project is the final assignment for a B.Ed.-degree within the Faculty of Education at the University of Akureyri. The essay will discuss the course work of life skill education, its’ manifestation and evolution within the Icelandic school system. The main emphasis of the essay is how life skills education manifest in the national curriculum guide of grades one through ten and comparing older curriculum guides to the current national curriculum guide. The beginning of the essay deals with an academic overview of the evolution of the Icelandic school system in general, the laws that encompass it and ...