Summary: | Rannsókn þessi er unnin sem lokaverkefni til B.Ed.-prófs í kennarafræðum við Háskólann á Akureyri. Fjallað er um birtingarmyndir lesblindu, úrræði fyrir nemendur og Davis-lesblindunámskeið. Rætt var við fjóra lesblinda einstaklinga á aldrinum sextán til 34 ára sem fóru í gegnum Davis-aðferðina. Skoðað var hvernig leiðréttingin gagnaðist þeim miðað við önnur úrræði sem þeir fengu í skólum sínum. Framkvæmd voru eigindleg einstaklingsviðtöl sem voru hljóðrituð og skráð niður. Megin markmið var að fá persónuleg svör frá viðmælendum í þeim tilgangi að vega og meta Davis-aðferðina miðað við önnur úrræði fyrir lesblinda nemendur. Í upphafi ritgerðarinnar er fræðileg umfjöllun um birtingarmyndir lesblindu, úrræði og Davis-aðferðina. Í þriðja hluta eru helstu atriðum rannsóknarinnar gerð skil og í fjórða kafla eru dregin fram meginniðurstöður úr viðtölunum og búin til ákveðin þemu sem sett eru í fræðilegt samhengi. Í umræðukafla eru niðurstöður svo ræddar og rannsóknarspurningu svarað. Notast var við lítið úrtak til að fá smá innsýn inn í Davis-kerfið. Viðfangsefnið var afar áhugavert og niðurstöður einróma jákvæðar þar sem nemendur hlutu góðs af námskeiðinu með bættum árangri í lestri, stafsetningu og einbeitingu. Misbrestur var hjá viðmælendunum á heimavinnu sem fylgdi námskeiðinu auk þess sem námskeiðið var ákaflega krefjandi fyrir þá. This research is my final project towards B.-Ed.-degree in Educational Science at the University of Akureyri. This essay is about dyslexia, resources for dyslexic students and The Davis Dyslexia program. I interviewed four dyslexic persons at the ages between sixteen and 34 who have tried the Davis method course. I examined if the Davis Correction Program benefited them compered to other resources they have had. I performed and recorded individual interviews. The main goal was to get personal answers for the purpose of evaluating the Davis method compared to other resources for students. The first part of the essay is about dyslexia, resources and The Davis Program. The main aspects ...
|