Fjármálalæsi ungmenna í Reykjanesbæ og þekking þeirra á fjármálahugtökum

Þessi ritgerð er lokaverkefni í B.Sc. námi í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun og fjármál við Háskólann á Akureyri. Ritgerðin er skrifuð af Guðnýju Ingu Kristófersdóttur, fjarnema, sem hér eftir verður kölluð skýrsluhöfundur. Skýrsluhöfundur hafði frjálst val um ritgerðarefni, þær kröfur voru þó...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Guðný Inga Kristófersdóttir 1994-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/33839
Description
Summary:Þessi ritgerð er lokaverkefni í B.Sc. námi í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun og fjármál við Háskólann á Akureyri. Ritgerðin er skrifuð af Guðnýju Ingu Kristófersdóttur, fjarnema, sem hér eftir verður kölluð skýrsluhöfundur. Skýrsluhöfundur hafði frjálst val um ritgerðarefni, þær kröfur voru þó gerðar að efnið þyrfti að tengjast námi í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun og fjármál. Skýrsluhöfundur starfaði við umsjónarkennslu í grunnskóla í Reykjanesbæ í tvö skólaár sem leiðbeinandi. Þar fékkst innsýn inn í aðalnámskrá grunnskóla ásamt útgefnu kennsluefni. Þá vaknaði grunur skýrsluhöfundar um að skortur væri á fjármálalæsi og fjármálaþekkingu hjá ungmennum í Reykjanesbæ og leiddi sá grunur af sér rannsóknarefnið. Skýrsluhöfundur telur að mikilvægt sé að fjármálafræðsla Íslendinga hefjist strax á grunnskólaaldri og að unnið sé að því að dýpka skilning ungmenna með áframhaldandi skólagöngu og þátttöku í samfélaginu. Markmið þessa lokaverkefnis er að rannsaka stöðu fjármálalæsis ásamt fjármálaþekkingu ungmenna í Reykjanesbæ. Í verkefninu leitast skýrsluhöfundur við að svara rannsóknarspurningunni: Þarf að efla fjármálalæsi og fjármálafræðslu ungmenna í Reykjanesbæ? Skýrslan skiptist í fræðilegan hluta, þar sem leitast er viðeftir að skilgreina helstu fjármálahugtök og rannsóknarhluta þar sem fjármálalæsi og fjármálaþekking ungmenna í Reykjanesbæ er könnuð og niðurstöður settar fram. Rannsóknin leiðir í ljós að fjármálalæsi og fjármálaþekking ungmenna í Reykjanesbæ er ábótavant. Sumir nemendur virðast ekki vita hvað fjármál eru og virðist þekking nemenda á því sviði ervera misjöfn eftir skólum. Niðurstöður benda auk þess til þess að fjöldi uUngmennai í Reykjanesbæ ofmetia fjármálaþekkingu sína en viljia efla fjármálæsi sitt og fá aukna fjármálafræðslu. Lykilorð: Fjármál, fjármálalæsi, fjármálafræðsla, ungmenni og Reykjanesbær This thesis is a final project in B.Sc. studies in Business Administration with emphasis on Management and Finance at the University of Akureyri, Iceland. The author, Guðný Inga ...