Summary: | Verkefni þetta er unnið til B.Ed.-prófs í kennarafræðum á íþróttakjörsviði við Kennaradeild Háskólans á Akureyri. Markmið þessa verkefnis var að kanna hvort hreyfing gæti nýst sem meðferðarúrræði við þunglyndi og kvíða. Lögð var áhersla á að skoða heilsu, hreyfingu og stöðu hreyfingar í samfélaginu og bera saman við þær ráðleggingar sem eru gefnar út af Embætti landlæknis um hreyfingu. Þannig viljum við skoða hvort verið sé að uppfylla þau skilyrði sem Embætti landlæknis segir til um varðandi hreyfiráðleggingar. Almennt íþróttastarf sem og grunnskólaíþróttir voru skoðaðar með það að markmiði að kanna stöðu barna í tæknisamfélagi nútímans. Einnig var farið yfir þunglyndi sem geðröskunarsjúkdóm sem margir þjást af og tölur sýna að sé að aukast töluvert í samfélaginu. Kvíði er geðröskun eins og þunglyndi sem getur haft hamlandi áhrif á lífsgæði fólks. Sagt er nánar frá einkennum þessa geðraskana og hversu margir á Íslandi eiga við þessa sjúkdóma að stríða. Niðurstöðurnar sýndu að hreyfing hefur áhrif á geðraskanir á borð við þunglyndi og kvíða og er hægt að notast við hreyfingu sem meðferðarúrræði við þessum geðröskunum. Með þessu ættu breytingar að eiga sér stað á aðalnámskrá grunnskóla í sambandi við íþrótttíma í grunnskólum eins og til dæmis að auka við tímann sem nemendur fá í íþróttum og sundi. Ásamt því að auka við tímann sem nemendur fá í íþróttir og sund vilja höfundar sjá breytingar hjá heilbrigðistofnunum sem og hjá sveitarfélögum á Íslandi á borð við aukna notkun hreyfiseðla og eftirfylgd með þeim. Einnig að sveitarfélög taki þátt í kostnaði við það að stunda íþróttir sem eru í boði í hverju sveitarfélagi. This theses is a part of our B.Ed degree in the art of teaching with sports as an specialization at the Faculty of Education at the University of Akureyri. The goal for this thesis was to investigate if exercise could be used as a treatment for depression and anxiety. The main focus was on health, physical activity, and the status of physical activity within the society. What are the physical ...
|