Essið: Ræktun jákvæðrar sjálfsmyndar á umrótatímum : áhrif dagbókarskrifa á unglingsstelpur í hópastarfi í félagsmiðstöð og þróun námsefnis því tengdu

Við lok grunnskólans eiga nemendur að standast mjög háleit hæfniviðmið um sjálfsþekkingu og jákvæða sjálfsmynd. Í þessu verkefni segi ég frá þeim leiðum sem ég hef beitt í sértæku hópastarfi í félagsmiðstöð í Reykjavík til að vinna með uppbyggingu sjálfstrausts hjá stelpum í 10. bekk. Hópurinn heiti...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kristín Dóra Ólafsdóttir 1992-
Other Authors: Listaháskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/33740
Description
Summary:Við lok grunnskólans eiga nemendur að standast mjög háleit hæfniviðmið um sjálfsþekkingu og jákvæða sjálfsmynd. Í þessu verkefni segi ég frá þeim leiðum sem ég hef beitt í sértæku hópastarfi í félagsmiðstöð í Reykjavík til að vinna með uppbyggingu sjálfstrausts hjá stelpum í 10. bekk. Hópurinn heitir Essið og var starfræktur á vorönn 2019 undir stjórn minni og Brynju Helgadóttur, tómstunda- og félagsmálafræðings. Þær aðferðir sem ég notaði í verkefninu byggja á persónulegri reynslu minni af breyttu sjálfsmati með hugarfarsbreytingu, dagbókarskrifum og skapandi vinnu. Ég studdist við rannsóknir sálfræðinga á gagnsemi skrifa í sálfræðimeðferðum unglinga. Þessar aðferðir vildi ég prófa með hóp sem er á miklum krossgötum í lífi sínu, á leið úr grunnskóla í menntaskóla. Ég tala um gildi lífsleiknináms í samfélaginu, innan skóla og í frístundastarfi. Einnig fjalla ég um hugtök eins og sjálfið og sjálfsmildi í samhengi við ungt fólk og þetta verkefni. Félagsmiðstöðvar og það starf sem fer fram innan þeirra er hluti af heildstæðu námi barna og unglinga. Í hópastarfinu Essinu prófaði ég verkefni sem ég samdi með það að markmiði að deila útkomunni í kennsluleiðbeiningum fyrir aðra sem vilja leiða svipað starf. Þær leiðbeiningar heita einnig Essið. Framgang hópastarfsins og persónulegan ávinning stelpnanna mældi ég með þremur spurningalistum yfir tímabilið sem ég greindi jafnóðum. Þar kom í ljós að allar sem voru virkar í hópnum og unnu verkefnin með okkur fundu fyrir jákvæðum áhrifum við að skrifa í dagbók og mæta á fundina í hópastarfinu. Þær sem tóku þátt voru svo ánægðar með starfið að við ákváðum að lengja það fram að útskrift þeirra. Verkefnið er því í raun þríþætt, hópastarfið þar sem verkefnin voru prófuð og ávinningur kannaður, kennsluleiðbeiningar fyrir Essið og þessi ritgerð því til rökstuðnings. Education authorities expect pupils graduating from secondary schools in Iceland to meet a criteria of very advanced personal skills, self-knowledge and a positive self-image. In this thesis I will describe a study I ...