Rótfesta

Á Birkibóli var stunduð skógrækt og er þar nú þétt birkikjarr. Við suðurhlið íbúðarhússins víkur skógurinn fyrir stöku reynitré. Leikskáldið Ellen er rótlaus en á Birkibóli fær hún tækifæri til þess að festa sterkar rætur líkt reynitréð en einnig að öðlast félagslegt stuðningsne...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Þórdís Ólöf Sigurjónsdóttir 1995-
Other Authors: Listaháskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/33645
Description
Summary:Á Birkibóli var stunduð skógrækt og er þar nú þétt birkikjarr. Við suðurhlið íbúðarhússins víkur skógurinn fyrir stöku reynitré. Leikskáldið Ellen er rótlaus en á Birkibóli fær hún tækifæri til þess að festa sterkar rætur líkt reynitréð en einnig að öðlast félagslegt stuðningsnet sem felst í rótarkerfi birkiskógarins. Nýr, léttur timburstrúktúr vex inni í gömlu steyptu skelinni af íbúðarhúsinu sem verður persónulegt athvarf Ellenar fyrir leikritaskrif og lestur. Ný, steypt skel hringar sig í kringum gömlu timburbyggingar útihúsanna sem verða að leiksmiðju. Dreginn er innblástur úr heimi leikhússins og í hönnuninni er samspil milli mannslíkama, hreyfingar og strúktúrs undirstrikað. Gamalt og nýtt mætist og verður eitt. Eldri rætur eru styrktar og nýjar spíra.