Góður staður til að eyða eftirmiðdegi, jafnvel eilífð : hlutverk og mikilvægi grafreita Reykjavíkur í borgarumhverfinu

Í tilvist hvers manns er fátt vitað fyrirfram. Þó er víst að dauðinn er óumflýjanlegur. Allt samfélagið hefur þannig á einn eða annan hátt tengingu við grafreiti landsins. Í þessari ritgerð eru þessar tengingar skilgreindar og gerð grein fyrir mikilvægi grafreita Reykjavíkur í borgarumhverfinu. Samh...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Arnaldur Bragi Jakobsson 1993-
Other Authors: Listaháskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/33626
Description
Summary:Í tilvist hvers manns er fátt vitað fyrirfram. Þó er víst að dauðinn er óumflýjanlegur. Allt samfélagið hefur þannig á einn eða annan hátt tengingu við grafreiti landsins. Í þessari ritgerð eru þessar tengingar skilgreindar og gerð grein fyrir mikilvægi grafreita Reykjavíkur í borgarumhverfinu. Samhliða hækkandi lóðaverði innan borgarmarka og þéttingu byggðar er áhugavert að taka til skoðunar tilverurétt grafreita í borgarumhverfinu. Upplifun af grafreitum er persónubundin og væntingar til grafreita samkvæmt því. Rými grafreita verður skoðað út frá kenningum heimspekinga sem hafa látið sig tilvist mannsins á jörðinni varða, dauðann og rýmin sem honum tengjast. Viðhorf til dauðans og tengsl samfélagsins við grafreiti hafa breyst mikið í nútímanum. Dauðinn hefur að mestu leyti færst út af heimilum inn á stofnanir og grafreitir út í jaðar byggðarkjarna. Samhliða því hefur dauðinn færst úr hversdagsleikanum og sorgarferlið sem dauðanum fylgir tekið miklum breytingum. Þessar breytingar og áhrif þeirra á notkun grafreita Reykjavíkur verða skoðaðar ásamt því að gerð verður grein fyrir áætlaðri endurskipulagningu grafreita Reykjavíkur til að auðga garðana lífi og með því, færa dauðann nær hversdagsleikanum á ný.