Hreyfðu þig í vinnunni : viðhorfskönnun meðal starfsfólks í Háskólanum í Reykjavík

Samkvæmt ráðleggingum á fullorðið fólk að hreyfa sig í að minnsta kosti 30 mínútur á dag. Heilsuefling er talin hafa góð áhrif á bæði líkamlega- og andlega sjúkdóma. Tilgátur eru á lofti um það að 15 mínútna hreyfing á vinnustað geti haft jákvæð áhrif á heilsuna og að hún geti aukið vilja fólks til...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sóley Guðmundsdóttir 1993-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/33530
Description
Summary:Samkvæmt ráðleggingum á fullorðið fólk að hreyfa sig í að minnsta kosti 30 mínútur á dag. Heilsuefling er talin hafa góð áhrif á bæði líkamlega- og andlega sjúkdóma. Tilgátur eru á lofti um það að 15 mínútna hreyfing á vinnustað geti haft jákvæð áhrif á heilsuna og að hún geti aukið vilja fólks til að stunda meiri hreyfingu. Markmið verkefnisins var að fá mynd á hreyfingu starfsfólks Háskólans í Reykjavík (HR) og hvernig væri hægt að bæta heilsueflingu og hreyfingu á vinnustaðnum. Notast var við megindlega rannsókn þar sem tölulegum upplýsingum var safnað um hreyfingu starfsfólks HR. Í ljós kom að meiri hluti þátttakenda þurfa að bæta við sína hreyfingu til að mæta daglegum viðmiðum. Sú hreyfing sem var oftast nefnd þegar spurt var hvaða hreyfingu þátttakendur myndu vilja bæta við sína hreyfingu var jóga, styrktarþjálfun, hjólreiðar, ganga og hlaup eða skokk. Tillögur að heilsueflingu meðal starfsfólks HR voru settar fram og má þar nefna heilsukeppni, gönguhóp, hjólreiðahóp og styrktarþjálfun á vinnutíma. Þá er bent á hvernig nýta má krafta nemenda við Háskólann í Reykjavík við hreyfingu og heilsueflingu starfsfólks. Lykilorð: hreyfing, heilsuefling, vinnustaðir, kyrrseta, þjálfun.