Greining á mögulegum lengdum jarðstrengs á Hálendislínu

Styrkja þarf flutningskerfi raforku á Íslandi svo það geti annað aukinni eftirspurn raforku og brugðist við óvæntum bilunum. Í kerfisáætlun Landsnets 2018-2027 er tillaga að leggja línu þvert yfir hálendið og styrkja flutningskerfið á Norðurlandi. Þessi lína er kölluð Hálendislína (HLL) og tengir saman flu...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ævar Gunnar Ævarsson 1985-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/33428
Description
Summary:Styrkja þarf flutningskerfi raforku á Íslandi svo það geti annað aukinni eftirspurn raforku og brugðist við óvæntum bilunum. Í kerfisáætlun Landsnets 2018-2027 er tillaga að leggja línu þvert yfir hálendið og styrkja flutningskerfið á Norðurlandi. Þessi lína er kölluð Hálendislína (HLL) og tengir saman flutningskerfið í norðri við flutningskerfið í suðri, yfir 200 km landsvæði með 50 km jarðstrengshluta. Markmið rannsóknarinnar spratt upp frá hugmyndinni um hvort notkun á kerfislíkani af flutningskerfi raforku á Íslandi til að skoða nákvæmt samspil HLL við raforkukerfið eins og það er, myndi styðja við niðurstöður Landsnets hvort að jarðstrengshlutinn myndi takmarkast við 50 km. Há rýmd jarðstrengja takmarkar lengd þeirra. Þeir framleiða mikið launafl sem þarf að jafna út, til að koma í veg fyrir yfirspennu við opna endann í spennusetningu. Rannsóknin skoðar hversu stóran hluta HLL væri hægt að leggja í jörðu, ef spennunni væri haldið lægra en 1,1 pu í línunni og spennuþrepinu væri haldið lægra en 5% við spennusetningu. Ákveðið var að nota líkan af flutningskerfi raforku á Íslandi frá Landsneti og framkvæma hermanir í PSS/E til finna þá lausn á staðsetningu spóla og dreifingu á útjöfnun sem gæfi sem lengstan jarðstreng, skoða áhrif á lengd strengs ef óskgildi spennu á vélunum á Suðurlandi væri lækkað og nota kvikar hermanir til að skoða hvernig kerfið bregst við að vera spennusett fyrir tillögurnar sem komu úr fyrri hlutum rannsóknarinnar. The transmission system in Iceland needs to be re-enforced to fulfill projected demand and be able to handle unexpected failures. There is a proposal in Kerfisáætlun Landsnets 2018-2027 to install a line over the highlands and strengthen the transmission system in the north of Iceland. This line is called Hálendislína (HLL) and connects the transmission system in the north to the south over a distance of 200 km with a 50 km underground cable (UGC). The idea of this research came from the question whether using a model of the Icelandic transmission system to examine the effect of HLL on the system ...