Tölvur í eðlisvísindum : verklegar æfingar með tölvutengdum mælitækjum fyrir nemendur á unglingastigi

Eftirfarandi verkefni er unnið sem lokaverkefni til B.ED.- prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri, vormisserið 2005. Tilgangurinn er að gera námsefni um eðlisvísindi fyrir efstu bekki grunnskóla. Er hér fyrst og fremst um gerð verklegra æfinga með tölvutengdum mæli- tækjum að ræða sem henta vel...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kristín Brynhildur Davíðsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2005
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/334
Description
Summary:Eftirfarandi verkefni er unnið sem lokaverkefni til B.ED.- prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri, vormisserið 2005. Tilgangurinn er að gera námsefni um eðlisvísindi fyrir efstu bekki grunnskóla. Er hér fyrst og fremst um gerð verklegra æfinga með tölvutengdum mæli- tækjum að ræða sem henta vel sem ítarefni með kennslubókum á unglingastigi. Eitt helsta markmið menntunar er að búa nemendur undir lífið í samfélaginu. Í margbreyti- leika nútímans reynir á hæfileikann til að bregðast við nýjum aðstæðum, takast á við og tileinka sér nýjungar og framfarir á öllum sviðum. Nám í eðlisvísindum stuðlar að því að nemendur geri sér grein fyrir því hversu mikilvæg þróun í vísindum er, bæði í nútíð og framtíð. Almenna notkun tölvunnar má finna allstaðar í nútíma samfélagi og í raun má segja að hún sé allstaðar. Skólinn á að endurspegla samfélagið og því ætti tölvan að vera sjálfsagður hlutur í skólastarfi. Flestir eru sammála um notagildi tölvunnar og að hægt sé að nýta hana sem hjálpartæki í námi. Verklegu æfingarnar tengjast allar forritinu „Data Studio“ sem er hugbúnaður til notkunar við mælingar, söfnun og úrvinnslu gagna. Það er öflug viðbót við ríkjandi kennsluaðferðir. Í verkefninu eru kennara- og nemendaleiðbeiningar fyrir verklegu æfingarnar, ásamt ítarupp- lýsingum um þau hugtök sem koma fyrir í verklegu æfingunum. Það er von mín að þessar verklegu æfingar komi að gagni við kennslu í eðlisvísindum.