Gjóskulög frá síðjökultíma í sjávarseti af landgrunni Íslands: Rannsókn á kjarna MD992275

Gjóskulög veita upplýsingar um eldgos, eldvirkni og er öflugt tól til þess að tengja jarðfræðilega atburði og umhverfi fornra jarðsögutímabila. Á Íslandi hefur verið byggt upp umfangsmikið gjóskulagatímatal fyrir síðustu 11.700 ár, nútíma. Rannsóknir á gjóskulögum í sjávarseti á landgrunni Íslands h...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ingibjörg Ragna Frostadóttir 1990-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/33359
Description
Summary:Gjóskulög veita upplýsingar um eldgos, eldvirkni og er öflugt tól til þess að tengja jarðfræðilega atburði og umhverfi fornra jarðsögutímabila. Á Íslandi hefur verið byggt upp umfangsmikið gjóskulagatímatal fyrir síðustu 11.700 ár, nútíma. Rannsóknir á gjóskulögum í sjávarseti á landgrunni Íslands hafa reynst mikilvæg viðbót við íslenska gjóskulagatímatalið. Í þessari rannsókn er leitast við að fá upplýsingar um myndun gjóskulaga frá íslenskum eldstöðvakerfum lengra aftur í tímann, eða á síðjökultíma. Til þess var rannsakaður sjávarsetkjarni (kjarni MD992275) af norðanverðu landgrunni Íslands ntt. á Tjörnes-þverbrotabeltinu. Sérstök áhersla var lögð á tímabilið á milli ~13.500 - 15.500 ár. Auk þess var tímabilið í kringum 10.800 ár rannsakað með það að markmiði að finna Öskju S gjóskulagið. Markmið rannsóknarinnar var að athuga hvort hægt væri að finna gjóskulög á þessu tímabili, greina uppruna þeirra og áætla aldur til þess að auka þekkingu á gossögu Íslands og gjóskulagatímatali. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós 7 gjóskulög, þar af 6 ný sem ekki hefur verið lýst áður. Fimm gjóskulög eiga uppruna sinn í Veiðivötn-Bárðarbungu kerfið og hafa áætlaðan aldur 13.932-15.439 ár, eitt frá Tjörnesþverbrotabeltinu/Kolbeinseyjarhrygg, 14.739 ára gamalt og eitt frá Öskju eldstöðvakerfi n.tt. Dyngjuhálsi 10.830 ±57 ára gamalt. Tephra layers provide information on volcanic eruptions, volcanic activity and are a powerful tool to connect geological events and ancient environments from geological periods. In Iceland, an extensive tephrostratigraphy and tephrochronology, has been esthablished for the last 11.700 years, the Holocene. Research on tephra layers in marine sediment on the Icelandic shelf have proven to be an important addition to the Icelandic tephrochronology. The aim of the research is to get information on the formation of tephra layers from Icelandic volcanic systems further back in time, or during the late glacial period. A marine sediment core (MD992275) from the north Icelandic shelf, more ...