Félags- og tilfinningafærniþjálfun fyrir leikskólabörn á vegum leikskóla, skólaþjónustu og heilsugæslu í Reykjavík: Heildstætt mat á stöðu og gæðum úrræða

Félags- og tilfinningafærni er hugtak yfir víðtæka færni sem auðveldar einstaklingum að viðhalda vellíðan og jákvæðum samböndum við aðra. Rannsóknir hafa sýnt fram á fylgni þess að hafa góða félags- og tilfinningafærni við vellíðan, betri sjálfsmynd og æskilega hegðun. Þar að auki hafa rannsóknir sý...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Iðunn Svala Árnadóttir 1992-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/33357
Description
Summary:Félags- og tilfinningafærni er hugtak yfir víðtæka færni sem auðveldar einstaklingum að viðhalda vellíðan og jákvæðum samböndum við aðra. Rannsóknir hafa sýnt fram á fylgni þess að hafa góða félags- og tilfinningafærni við vellíðan, betri sjálfsmynd og æskilega hegðun. Þar að auki hafa rannsóknir sýnt fram á fylgni á milli þessa og að standa sig vel í námi og á vinnumarkaði. Þjónustuaðilar sem starfa innan Reykjavíkurborgar og sinna börnum á leikskólaaldri leggja áherslu á að bjóða viðeigandi aðstoð eða stuðning til allra sem á honum þurfa að halda. Markmið þessarar rannsóknar var því að kortleggja þau sértæku félags- og tilfinningafærniúrræði sem standa börnum á leikskólaaldri til boða hjá þjónustustofnunum í nærumhverfi barna, það er, leikskólum, skólaþjónustu og heilsugæslu, innan Reykjavíkurborgar. Niðurstöður bentu til þess að fáir þjónustuaðilar byðu upp á sértæk félags- og tilfinningafærniúrræði fyrir börn á leikskólaaldri. Því eru ýmis tækifæri til úrbóta fyrir stefnumótandi aðila á Reykjavíkursvæðinu varðandi félags- og tilfinningafærniþjónustu fyrir börn á leikskólaaldri, til þess að stuðla enn betur að þroska, heilsu og velferð allra barna. Social and emotional learning refers to acquisition of skills that foster wellbeing and positive social relationships. Studies have shown a positive correlation between social and emotional skills and emotional well-being, self-confidence, positive behavior, and school and work performance. Service providers in Reykjavík emphasize offering appropriate services and preventative measures to benefit residents of the area, including children. The purpose of the present study was to obtain an overview of social and emotional support services that are available to children ages 1-6 years, in Reykjavík. In order to obtain a comprehensive overview of the extent and quality of the services provided, service providers (i.e., professionals working in preschools, school-based support services, and community healthcare clinics) were asked to complete an online survey ...