Á slóðum ævintýra: Viðmið fyrir hönnun fjallahjólreiðaleiða

Fjallahjólreiðar hafa verið að færast í aukana á Íslandi á síðustu árum, bæði á meðal heimamanna og ferðamanna. Ferðalög á fjallahjólum um landið hafa mikil tækifæri í för með sér fyrir ferðaþjónustu. Þau hafa einnig möguleika á að bæta álag á þeim slóðum sem nú þegar eru til staðar, sem leiðir til...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Árni Magnús Magnusson 1993-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/33330
Description
Summary:Fjallahjólreiðar hafa verið að færast í aukana á Íslandi á síðustu árum, bæði á meðal heimamanna og ferðamanna. Ferðalög á fjallahjólum um landið hafa mikil tækifæri í för með sér fyrir ferðaþjónustu. Þau hafa einnig möguleika á að bæta álag á þeim slóðum sem nú þegar eru til staðar, sem leiðir til neikvæðra áhrifa á náttúru landsins. Til þess að verða við eftirspurn fjallahjólreiðafólks og að koma í veg fyrir neikvæð áhrif á umhverfið er uppbygging aðlaðandi fjallahjólreiðaleiða mikilvæg. Í þessu verkefni er gerð tilraun til þess að varpa ljósi á hvað einkennir aðlaðandi fjallahjólreiðaleiðir. Einkenni leiða sem hafa fengið gæðastimpilinn „Epic“ frá fjallahjólreiðasamtökunum International Mountain Bicycling Association (IMBA) eru greind. Þessar leiðir, sem tilnefndar eru af notendum, eru álitnar gæðaleiðir af fjallahjólreiðasamtökunum. Því eru þær teknar til greiningar. Greining þeirra snýst um að finna mynstur í lengd, hæð, bratta og fleiru. Viðmið eru svo búin til í kjölfar greiningar, sem gera hönnuðum fjallahjólreiðaleiða kleift að hanna leiðir í anda þeirra. Leiðirnar eru fjölbreyttar, en erfiðar. Þær eru með ákveðinn fjölda mishæða á kílómeter og hækkun og lækkun í hverri mishæð fylgir mynstri. Einnig eru í þessu verkefni gerðar tvær tillögur um slíkar leiðir á Borgarfirði eystri. Borgarfjörður eystri hefur fengið aukna athygli fjallahjólreiðafólks á seinustu árum og myndi njóta góðs af aukinni uppbyggingu innviða á því sviði. Einnig myndi aukning í fjallahjólreiðum efla fjölbreytni í ferðaþjónustu á staðnum. Mountain biking in Iceland has seen a recent surge in popularity and has attracted adventure seeking riders from all over the world. Riding in the Icelandic hills and mountains provides new opportunities for tourism development. It also presents a challenge, as an increase in the number of riders leads to an increased pressure on the already present hiking trail systems. To meet the demand of mountain bikers, and to prevent negative effects on the environment, new and attractive trails must be ...