Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum: Viðhorf og umhverfisáhrif

Mikil vöntun er á rannsóknum á sviði ferðamálafræða hvað varðar umhverfisáhrif sem kunna að eiga sér stað á meðan Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum stendur yfir. Með þessari ritgerð er ætlunin að vekja athygli á umhverfisáhrifum í Herjólfsdal sem er einnig viðfangsefni ritgerðarinnar. Hamingja, ást og gleð...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Kristín Thelma Birgisdóttir 1993-, Þorgerður Anna Atladóttir 1992-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/33264
Description
Summary:Mikil vöntun er á rannsóknum á sviði ferðamálafræða hvað varðar umhverfisáhrif sem kunna að eiga sér stað á meðan Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum stendur yfir. Með þessari ritgerð er ætlunin að vekja athygli á umhverfisáhrifum í Herjólfsdal sem er einnig viðfangsefni ritgerðarinnar. Hamingja, ást og gleði er lýsandi fyrir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Markmið þessarar rannsóknar er að fá skilning á upplifun þeirra sem sækja hátíðina sem og þeirra sem búsettir eru í Vestmannaeyjum hvað varðar umhverfisáhrif sem hátíðin gæti haft í för með sér. Framkvæmd var rannsókn með könnunarraðsniði þar sem tekin voru fjögur viðtöl, tvö við heimamenn annars vegar og tvö við gesti hins vegar. Niðurstöður leiddu í ljós að umhverfisáhrif eru ekki ofarlega í huga heimamanna né gesta. Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum snýst fyrst og fremst um að vera umvafin/n sínum nánustu og skapa minningar. Spurningakönnun ætluð gestum var send út á Facebook-síðum höfunda og inn á Facebook-síðuna Heimaklettur fyrir heimamenn. Niðurstöður leiddu í ljós að langflestir heimamenn telja hátíðina vera fjölskylduhátíð. Þjóðhátíðarlögin skipa stóran sess í upplifun af hátíðinni að mati gesta og heimamanna. Eyjamenn eru töluvert neikvæðari fyrir þeirri hugmynd að auka umfjöllun um umhverfsáhrif í Herjólfsdal. Mikil spenna ríkir meðal gesta og heimamanna þegar hátíðin gengur í garð ár hvert en gott væri að finna lausn á þeim umhverfisáhrifum sem hátíðin hefur í för með sér. Flestir þátttakendur rannsóknarinnar leita að ruslatunnum á svæðinu og stuðla þar með að betri umgengni í Herjólfsdal. There is a lack of research in the field of tourism in terms of environmental effects that may occur during the National Festival in the Westman Islands. The purpose of this thesis is to draw attention to the environmental impact in Herjólfsdalur, which is also the subject of the thesis. Happiness, love and gathering are descriptive of the National Festival in the Westman Islands, but the aim of this study is to gain an understanding of the experience of those who attend the ...