Tíðni geð-og taugaþroskaraskana hjá börnum á aldrinum 6 -18 ára. Klínískt úrtak frá Barna- og unglingageðdeild Landspítala (BUGL) og Litlu Kvíðameðferðarstöðinni.

Tíðni greininga á geð- og taugaþroskaröskunum barna og unglinga í klínísku þýði getur veitt greinargóðar upplýsingar fyrir matsvinnu og meðferð þessa skjólstæðingahóps. Á Íslandi fer greining og meðferð geðraskana hjá börnum og unglingum fram á mörgum stöðum. Því er mikilvægt að fá upplýsingar frá m...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sigríður Helgadóttir 1993-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/33246
Description
Summary:Tíðni greininga á geð- og taugaþroskaröskunum barna og unglinga í klínísku þýði getur veitt greinargóðar upplýsingar fyrir matsvinnu og meðferð þessa skjólstæðingahóps. Á Íslandi fer greining og meðferð geðraskana hjá börnum og unglingum fram á mörgum stöðum. Því er mikilvægt að fá upplýsingar frá mismunandi stofnunum til að skýrt sé hvernig dreifing vandans er. Þessi rannsókn er unnin í kjölfarið af þýðingu og staðfærslu DSM-5 Schedule for Affective Disorders and Schizoprenia for School Aged Children – Present and Lifetime Version (DSM-5 K-SADS-PL) á íslensku. Markmið þessarar rannsóknar var að varpa ljósi á tíðni og dreifingu geð- og taugaþroskaraskana barna og unglinga í klínísku þýði. Bornar voru saman tölur frá ríkisrekinni stofnun, Barna- og unglingageðdeild Landspítalans (BUGL) og tölur frá einkarekinni sálfræðistofu (Litlu kvíðameðferðarstöðinni) ásamt því að skoða mun á alvarleika einkenna með víddarmælingum. Rannsóknin innihélt 41 þátttakanda á aldrinum 6-18 ára. Að auki var lagt mat á þunglyndis-, kvíða og áráttu- og þráhyggjueinkenni hjá 29 þátttakendum úr fyrri rannsóknum á K-SADS-PL-5. Niðurstöður benda til að einstaklingar sem fá þjónustu á BUGL sýni alvarlegri einkenni en einstaklingar sem leita til Litlu KMS bæði þegar litið er á fjölda greininga á hvern þátttakanda sem og víddarmælingu á líðan og hegðun samkvæmt mati foreldra með spurningalistum. Tíðni nokkurra raskana var jafnari á milli staða og kynja en búast mætti við, t.d. ADHD. Niðurstöður benda einnig til að tíðni raskana hafi að einhverju leyti verið vanmetin á BUGL og að skjólstæðingahópur BUGL sé þyngri nú en þegar fyrri rannsókn var gerð á BUGL. Nauðsynlegt er því að vanda vel til verka þegar kemur að greiningum á geð- og taugaþroskaröskunum hjá börnum og unglingum. The frequency of mental and neurodevelopmental disorders in children and adolescents in a clinical population can be of value in evaluation and treatment of those disorders. In Iceland there are a number of institutions that are devoted to the care of mental health of ...