Innleiðing þjóðréttarsamninga í íslenskum rétti

Í ritgerðinni er gerð könnun á framkvæmd við innleiðingu þjóðréttarsamninga á Íslandi, farið er yfir stöðu þjóðaréttar í íslenskum rétti og gildandi reglur á sviði utanríkismála. Þá er framkvæmd við innleiðingu lýst, frá samningsgerð og fullgildingu samnings til lagabreytinga og annarra aðgerða sem...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hrefna Ragnhildur Jóhannesdóttir 1993-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/33150
Description
Summary:Í ritgerðinni er gerð könnun á framkvæmd við innleiðingu þjóðréttarsamninga á Íslandi, farið er yfir stöðu þjóðaréttar í íslenskum rétti og gildandi reglur á sviði utanríkismála. Þá er framkvæmd við innleiðingu lýst, frá samningsgerð og fullgildingu samnings til lagabreytinga og annarra aðgerða sem framkvæmdar eru í því skyni að uppfylla þjóðréttarlegar skuldbindingar ríkisins samkvæmt viðkomandi samningi. Sjö þjóðréttarsamningar sem Ísland hefur gerst aðili að undanfarna fimm áratugi eru teknir sérstaklega til skoðunar og innleiðingarferli þeirra lýst skref fyrir skref. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að innleiðingarferlið er að stærstum hluta ólögfest og framkvæmdin hefur verið með ýmsu sniði. Tveimur meginaðferðum hefur verið beitt við innleiðingu, það er aðlögun laga og lögfesting samnings, þó einnig sé hægt að greina aðrar aðferðir. Framkvæmd við fullgildingu samninga hefur einnig verið óskýr og oft ófullnægjandi, samningar hafa reglulega verið fullgiltir en ekki innleiddir að fullu fyrr en löngu síðar, jafnvel þó efni þeirra kalli á breytingar á landslögum. Ófullnægjandi innleiðing samninga hefur í för með sér réttaróvissu og getur sett dómstóla í erfiða stöðu en þeir hafa gefið óinnleiddum samningum mismikið vægi. Á síðustu árum virðast stjórnvöld vera farin að vanda betur til verka við innleiðingu, til dæmis með því að kanna betur fyrirfram hvort samningar kalli á lagabreytingar. Hins vegar byggir ferlið ennþá á óskráðum reglum og getur verið ófyrirsjáanlegt. This essay describes how international treaties are incorporated into Icelandic law, it discusses the status of international law in Iceland and rules regarding international affairs. The execution of implementation is examined in detail, from the making of the agreement and its ratification to subsequent changes in domestic legislation and other measures which are taken with the aim of fulfilling the states obligations according to the international agreement. Specifically, seven international agreements are examined and the process of ...