Einangrun „basolateral“ hluta þekjufrumna úr þörmum Atlantshafsþorsks

Markmið verkefnisins var að einangra ,,basolateral“ hluta þekjufrumna úr þörmum Atlantshafsþorsks (Gadus morhua). Farið var í gegnum fimm mismunandi einangrunaraðferðir til að finna hentuga aðferð til að ná markmiðinu. Til að meta hvernig einangrunarferlið gekk fyrir sig var virkni merkiensíma fyrir...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Erna Knútsdóttir 1984-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/3309
Description
Summary:Markmið verkefnisins var að einangra ,,basolateral“ hluta þekjufrumna úr þörmum Atlantshafsþorsks (Gadus morhua). Farið var í gegnum fimm mismunandi einangrunaraðferðir til að finna hentuga aðferð til að ná markmiðinu. Til að meta hvernig einangrunarferlið gekk fyrir sig var virkni merkiensíma fyrir mismunandi frumuhluta mæld. Na+K+ATPasi er algengt merkiensím fyrir ,,basolateral“ hluta frumuhimnunnar og var notað í þessu verkefni sem slíkt. Það reyndist þó erfitt að finna góða aðferð til að mæla virkni þess, en nokkrar mæliaðferðir voru skoðaðar. Leitast var eftir að finna aðferð sem væri nákvæm, endurtakanleg og helst auðveld í framkvæmd. Í þessu verkefni var einnig prófuð aðferð til að einangra himnufleka frumuhimnunnar „basolateral“ megin.